| Birna 的个人资料frú birna照片日志列表 | 帮助 |
|
1月31日 "Ferðamannaiðnaðurinn"Hversvegna viljum við endilega efla ferðamannaiðnaðinn ? Hver vill efla ferðamannaiðnaðinn ? Þeir sem reka hótel ? En hvað með okkur hin ? Viljum við fylla okkar fallegustu staði af ferðamönnum ? (ég gæti líka sagt "túristum" til að hljóma neikvæðari)
Ég sé í ferðamannaiðnaðinum aðallega láglaunastörf og átroðning og sjoppumenningu í og við náttúruperlur landsins.
Ég er ekki viss um að ég vilji að Þórsmörk sé full af útlendingum í rútu með myndavélar. Ég vil geta farið í Þórsmörk með fjölskylduna án þess að hún sé eins og rútustöð og fjöll og hlíðar skreytt með marglitum útivistarjökkum. Ég er eigingjörn.
Þeir tékkar sem ég kynntist útí Prag syrgðu miðborgina sína. Þeir geta ekki notið þess að fara í bæinn til að hitta félagana og fá sér bjór í góða veðrinu eða kaupa ís handa krökkunum. Miðborgin hefur verið hertekin af túristum og sölumennsku.
Ætlum við að láta auman hagvöxt vera mælikvarða allra hluta ?
b 1月28日 Eydís er íslandsmeistari í handbolta!Þessar stelpur eru frábærar! 5.flokkur Fram vann íslandsmót B liða um helgina. Loksins eftir margra ára baráttu sigruðu þær Gróttu. Elsku prinsessan varði nokkur víti á mótinu og sýndi sannfærandi takta. Þær spiluðu snilldarvel og léku allskonar "kerfi" (hvað veit ég) og áttu sigurinn fullkomlega skilinn. "Berjast Frammarar"!!! Foreldrarnir hoppuðu á hliðarlínunni.
Ég lét námið sitja á hakanum og tók þátt í hoppinu og blístrinu og hrópunum. Þegar stelpurnar sáu framá að þær væru virkilega að sigra, jókst sjálfstraustið um allan helming og þær áttu snillarleik, Eydís varði 2svar og Karó, Hafdís og Kristín léku sér með boltann og Íris í sigurvímu æddi upp völlinn og skoraði glæsilegt mark. Þær eru orðnar góðar. Ég vona að ég fái myndir hjá foreldrum Kristínar. En útí allt aðra sálma.. ég er búin að velja mér grímubúning fyrir öskudaginn.
og ég fór í bíó í gærkvöldi á myndina Foreldrar. Ég mæli með henni. Ég held hún sé besta íslenska myndin sem ég hef séð. Hún segir 3 sögur og gerir það vel. Ég ætla að taka hina myndina, Börn, á vídeó. Vesturport stendur fyrir þessu. Sástu Rómeó og Júlíu ? Það er besta uppfærsla á leikriti sem ég hef séð.
b 1月25日 Með sjálfstýringuna áSkrítið!
ég held ég hafi gengið í skólann í morgun, en ég man ekkert eftir því ! ekki neitt. Ég hugsa og hugsa og man ekki eftir að hafa lagt bílnum, ég er viss um að ég kom gangandi, en ég man e k k e r t eftir því. Var snjór eða slabb ? Myrkur eða rökkur ? Kalt eða hlýtt ? Ég man samt eftir að hafa komið inn í bygginguna ..
Vonandi notaði ég tímann vel á leiðinni og svaf
z 1月9日 PólitíkMig langar til að rífast um pólitík, en hef ekki tíma til þess. Er að lesa Game theory fyrir tíma hjá Yngva á morgun. Áramótaheitið "Vera dugleg í skólanum".
Mér finnst þessi default fontur alltof lítill, er ég með of lítinn skjá eða eru augun eitthvað að þreytast ?
b 1月8日 Skólinn er byrjaður aftur og ég fer til TenerifeÉg verð í þessum kúrsum :
Smá vesen að ég fer í vikuferð til Tenerife á fimmtudaginn. Vesen segi ég.. en það verður æðislegt. Loksins geri ég það sem ég hef alltaf ætlað en aldrei látið verða af. Fer í sól í janúar til að losna við þetta óþolandi skammdegisþunglyndi sem hefur þvælst fyrir mér hálfa ævina.
Ég er komin með meira en nóg af því að tilveran minnki og minnki og breytist í svartan skókassa þar sem er ekkert pláss fyrir mig, hvað þá annað fólk með mér. Alein í svörtum skókassa. Það gengur ekki.
Talandi um Þjóðhagfræði: Ef við göngum í Evrópusambandið og tökum upp Evru, þá verðum við að hætta að borða Cheerios, því það er bannað í ESB.
What's it gonna be boy ? Evra eða Cheerios ?
b 1月5日 Hótanir AlcanÁlverinu í Straumsvík [verður] lokað ef ekki verður af stækkun segir aðal-fyrirsögn Fréttablaðsins(1) í dag. Stækkun úr 180x í 360x sem er næstum þreföldun.
Þarna er fólki í Hafnafirði hótað að þau verði af skatttekjum og atvinnu ef þau verði ekki stillt og samþykki stækkun. Nákvæmlega eins og Andri segir í Draumalandinu(2). Allt fer í kaldakol ef þú samþykkir ekki strax!
Hversvegna er ekki alveg í lagi að hugsa þetta aðeins og samþykkja þá bara á næsta ári? Eða þarnæsta? eða ekki neitt?
Ég las einhversstaðar(3) að ef stækkunin verður samþykkt þá þarf reisa 3 nýjar virkjanir. Eru þá Hafnfirðingar að ákveða hvor af þeim 3ur virkunum verði?
Ætlum við að láta kjánaleg orð "upplýsingafulltrúa" Alcan hræða okkur til að ákveða eitthvað sem liggur ekkert á að ákveða?
b
Heimildalisti:
(1) forsíða Fréttablaðsins 5.janúar 2007
(2) Draumalandið, sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð, eftir Andra Snæ Magnason. Hist og her um bókina
(3) einhversstaðar 1月4日 '007 Gleðilegt árNúna er árið '007 Við verðum að gera eitthvað ævintýralegt við það.
Vigdís er búin að plana sitt ár .. :] mér finnst þetta mjög góð hugmynd hjá henni að skipuleggja árið svona fyrirfram. Ég horfi sjaldan lengra en framað næsta matartíma.
Nú er allt að fara í gang. Baldur byrjaði aftur í skólanum í gær og fer í þýskupróf í dag. Krossum fingur fyrir strákinn. Hann er bara búinn að vera duglegur að læra held ég.
Eydís fór í skólann í morgun og ætlar að bjóða í afmælið sitt. Hún varð 13 ára í gær. Orðin táningur stelpudósin. Hún heldur bekkjarafmæli á föstudaginn og fjölskylduafmæli á sunnudaginn. Laugardagurinn fer undir fótboltamót innanhúss. já, einmitt, markmannshanskarnir sem ég ætlaði að kaupa fyrir hana. Baka súkkulaðikökur og tertu eins og ég fékk hjá frú Ingunni 3ja í jólum.
Svo byrjar skólastelpan Birna í skólanum á mánudag. Ég fékk póst frá Yngva yfirkennara, ég fæ að kenna stærðfræði á vorönninni :] það verður gaman. Þá er eins gott að standa sig til að halda þeirri sjálfsímynd að ég geti kennt stærðfræði. Svo byrja ég skólaárið á því að stinga af til Tenerife! en ég tek lesefni með mér og tölvuna. Mér var sagt að passa mig á þjófunum á Tenerife!
ég fékk póst .. Berlínarmaraþon verður hlaupið 30.sept Mig dauðlangar að skrá mig
b |
|
|