Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas Herramientas Ayuda

Blog


27 enero

Bleikt og svart

 
Ég mætti 6 ára bekk í vettvangsferð í hverfinu mínu um daginn. Stelpurnar voru allar með bleika eða rauða skólatösku. og í Rauðum úlpum. Allar...með bleika tösku með blóma eða Barbie eða Pony legum myndum.  Strákarnir voru ekki með bláar töskur .. heldur svartar .. með sjóræningja eða hauskúpu eða "vondu-kalla" myndum. Mér finnst þetta vera gjörólíkt því sem var fyrir 10-15 árum þegar krakkarnir mínir voru á þessum aldri. Þá voru 2-3 prinsessur en ekki allur hópurinn. Hvað býr þetta til?
 
bskólatöskur
26 enero

Aldrei án Framsóknar

 
Nú er Bingi hættur, þá geta Sjálfstæðismenn hoppað aftur í bólið hjá Framsókn, Óskar er ferskur og fínn. Þjóðin getur ekki verið án Framsóknar í svartasta skammdeginu.
 
Kjartani Magnússyni finnst það eigi að ríkja stöðugleiki í pólitík :]]   það er dásamlegt
 
b
25 enero

Meiri lætin ..

Loksins láta íslendingar heyra í sér þegar þeim er misboðið. Hver var það sem sagði að ísl. kjósendur væru aldrei á móti stjórnvöldum, þeir væru alltaf .. hikandi. Þeir eru kannski að þroskast. Læra af Frökkum.
b
22 enero

Japanska

Baldur er í útlandinu .. það er greinilega ekki einfalt. Í dag hljómuðu eldvarnarflautur í borginni í 20 mínútur og einhver tilkynning var lesin í sífellu. Hann skildi eitt orð í henni. það var orðið "hætta".  Hann sendi mér vídeó af fjörinu .. mynd útí myrkrið. .með loftvarnarflautum .. Ekki spyrja mig. Ég veit ekki meir.
Fyrstu dagana útí Japan var pabbi hans hjá honum, að sjá til þess að hann kæmist til réttrar borgar og jafnvel með farangurinn líka. Þeir hittu vinkonu Baldurs, hana Sayako, en Pétur kallaði hana alltaf "Psyco" :] Mikill tungumálamaður.
 
b
21 enero

Hundrað kallinn


Loksins er eitthvað í fréttum :] og ástæða til að halda úti fréttatíma í fullri lengd. Dagur var borgarstjóri í 100 daga. Hundrað kallinn.

Hugsjónalaust valdabrölt og svo er verið að reyna að fóðra þetta eitthvað eftirá með fallegum orðum og málefnaskrá sem hefur verið samin yfir kaffibolla. Ólafur var ekki einusinni búinn að nefna þetta við Margréti, sem er hans varamaður og hefur setið í borgarstjórn á meðan hann var fjarverandi. Villi hefur boðið honum að tylla sér í stólinn og Ólafur hoppar. Hvað ætli hann fái mikil völd í alvörunni?
Sjálfstæðisflokkurinn pissublautur að hefna ófaranna frá í haust þar sem hann klúðraði ob missti bæði völdin og virðinguna. Dvergarnir hans Villa glottandi og hálf-skömmustulegir á bakvið þá Ólaf á Kjarvalsstöðum áðan. En svo er stærsti brandarinn að Björn Ingi er að reyna að setja upp vandlætingarsvip. Hann kenndi þetta fag!
 
Hver treystir Villa fyrir borgarstjórastólnum eftir allt klúðrið sem hann gerði sig sekan um? Háspenna, bjórkælinn, REI málið og hans eigið fólk sneri baki við honum. Auk þess sem hann sá alla meinbugi á því að fara í samstarf við Ólaf eftir kosningar, þá var hann með stjörnur í augum yfir Birni Inga og sagði hvað sem var til að berja Ólaf frá sér. Orðin sem sögð eru hafa enga merkingu. Hlusta á það sem er á bakvið þau.
 
Margrét hefur heldur betur séð ýmsar hliðar á karlpeningnum í kringum sig. Núna keppast þeir sem styðja nýja meirihlutann að tala um hana eins og svikakvenndi ef hún ekki bakkar Ólaf og Sjálfstæðisflokkinn upp, ef til þess kæmi að hún kæmi inn sem varamanneskja. Hún á að styðja málefni Frjálslynda flokksins! segir Guðjón. Einmitt.
Nú er svo mikið í fréttum að veðurfréttunum var frestað!
 
b

Græni kallinn kemur alltaf aftur

 
Núna þegar markaðskort Glitnis er eldrautt  http://www.glitnir.is/Markadir/Markadskort/
og markaðir Evrópu hafa lækkað um 5% bara í dag  http://finance.yahoo.com/intlindices?e=europe
þá minnir Baldur á að "Græni kallinn kemur alltaf aftur"
 
( Greiningardeildir hvað !  )
20 enero

Himneskur dagur

 
Prestur sem syngur vel ! Ég er að hlusta á útsendingu frá Neskirkju og mála herbergið hennar Eydísar. Fermingarbarnið er í messu í Grensáskirkju. Svo fer hún í skírn á eftir hjá litlu frænku sinni Davídsdóttur. Mjög kirkjulegur dagur hjá okkur. Svo er veðrið úti heimneskt. Ég ætla á skíði.
 
b
 
ps. Baldur er á lífi, búinn að kaupa pott og uppþvottabursta
13 enero

Það liggur á !

 
Bush says:
Tökum höndum saman og ráðumst á Íran, áður en það er um seinan.
áður en það verður skipt um forseta
 
b
11 enero

Markaðurinn gerir eins og ég segi

Ég gerði í fyrra smá verkefni, þar sem ég notaði gerfigreind til að læra að versla með hlutabréf í Íslensku Kauphöllinni. Þá koma það mér á óvart hvað gengissveiflurnar eru "mannlegar" og lítið kalkúleraðar. Markaðurinn hagar sér bjánalega mikið í stíl við niðurstöður þessa verkefnis. Kannski ætti ég að nenna að selja Lífeyrissjóði Verslunarmanna þessar pælingar. Þá græði ég tvöfalt.
 
b
08 enero

Ein stærsta uppgötvun ársins 2007


Vá!, ég er með almennilegan kennara. Ekki honum að kenna að mér gegnur námið hægt :]

Uppgötvun dr. Yngva Björnssonar valin sem ein stærsta uppgötvun ársins 2007 af the Science Magazine

Í ágúst sl. flutti hið virta vísindatímarit the Science Magazine okkur fréttir af því að búið væri að finna hina fullkomnu lausn á því að hvernig spila ætti dammtafl (e. checkers) án þess að eiga minnstu möguleika á því að tapa leiknum. Dr. Yngvi Björnsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, er hluti rannsóknarteymisins sem kom að þessu verkefni og einn af aðalhöfundum greinarinnar í Science Magazine.

Það sem vekur athygli er að the Science Magazine velur þessa uppgötvun í 10. sæti yfir stærstu uppgötvanirnar árið 2007. Þær uppgötvanir sem verma sætin fyrir ofan eru m.a. erfðamengjagreining, tímaflakk og geimgeislar.

Hægt er að lesa um dammtaflið og aðrar stórar uppgötvanir ársins 2007 á vef the Science Magazine.

 Checkers is solved 

 The algorithms the team developed could find broad applications, others say, such as deciphering the information encoded in DNA.

b

03 enero

Koja

 
Vitið þið um einhvern sem vill kaupa þessa koju ? Eydís er orðin unglingur og vill fara að endurhanna herbergið sitt. Hún verður sko sett í minna herbergið, nóg að hún rusli til þar. Ég hlakka til að flytja og breyta.
 
b
02 enero

Árið 2008

 
Mér líst endemis vel á þetta ár. Ég ætla  bara að gera skemmtilega hluti. Meira að segja BV sér framundan tóma fokkings hamingju. Ásta nýtir sér þetta bjartsýniskast hjá mér og er búin að skrá mig á æfingar hjá Hreyfingu kl 6:30 á morgnanna. Hún ætlar að koma mér í form svo ég komist með henni á Kilimanjaro ..  þetta fólk drekkur of mikið. Fær allskonar hugmyndir.
 
Mér skilst að bókin "The Secret" fjalli um að með því að beita hugarorkunni þá stýri maður framvindunni. Ef ég fókusa á Marilyn Monroe..þá verð ég geðveikt sæt, en það er kannski ekki sniðugt, hún er dauð. Ég einblíni frekar á Jóakim Aðalönd til að rétta við fjárhaginn eftir skólasetuna og fasteignabraskið.
 
$
 
Árið 2008 er hlaupaár. Ég ætla að hlaupa

Híði

Nú hef ég birna, fylgt eðlinu og legið í híði á meðan vindurinn blés og frostið beit. Ég stóð mig vel.
 
b