| Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas | Ayuda |
|
31 enero Gamalt og nýttÞarf ég enn og aftur að fara að mótmæla niðrí bæ?? Var þetta ekki komið. Er Framsókn enn og aftur með plott og makk og flokks- og einkahagsmuni í forgrunni. Var það ekki í gamla Íslandi ? Sigmundur Finnur Ásgrímsson. Ég sem á eftir að skúra og setja í vél .. b ReiknikjarkurJæja, Kolbeinn hafði kjark til að reikna út hvað ég á að borga á mánuði Hann miðar við að við greiðum skuldirnar á 20 árum með 5% vöxtum. Þá eru það ca 190 þús á mánuði fyrir mig og Eydísi . . + allt annað. Eydís er með ca. 20þús á mánuði í bakaríinu sínu. Ég tek restina. Þetta verður ..létt b 25 enero NiðurtalningNu er Björgvin (1)farinn, og tok FME (2) blessunarlega með sér. Við bíðum eftir því að Davíð(3), Geir(4) og Árni(5) fari sömu leið. Þá á stjórnin hugsanlega séns og stjórnarkreppu aflýst í bili, og mótmælin sjatna. Ég horfði á Davíð yfirgefa árshátíð Seðlabankans í gær, löggan laumaði honum út bakdyramegin þegar flestir mótmælendur voru framanvið húsið. Hann er í rauninni í fangelsi, ekki skreppur hann útí Hagkaup. (hvar gæði heimsins er að finna) b 22 enero Helgarfrí„Engin mótmæli föstudagskvöld eða laugardagskvöld. Látum ekki djammmenninguna blandast mótmælunum og byltinguna blandast fylleríi.
b Bending".. Fyrsta verk Davíðs var þó að hækka stýrivexti í 10,5 prósent. Hafði bankinn þá hækkað vexti sína um 5,2 prósent frá árinu 2004. Seðlabankinn hækkaði síðan ítrekað stýrivextina árið 2006 og voru þeir í lok ársins komnir í 14,25 prósent. Þetta átti eftir að skapa grundvöllinn fyrir Icesave-reikninga Landsbankans erlendis og Kaupþing Edge-reikninga samnefnds banka, þar sem bankarnir nýttu gríðarlegan vaxtamun milli Íslands og annarra landa til að lokka til sín sparifjáreigendur. Með því styrktist gengi krónunnar gríðarlega og viðskiptahalli jókst enn. Aldrei áður hafði orðið jafnmikil skuldsetning hérlendis og eftir að Davíð varð seðlabankastjóri."
b
FylgiÁ síðustu dögum hef ég þusað helling útaf "ástandinu" og 8 manns hafa skorað á mig að bjóða mig fram. Þarmeð er ég líklega komin með meira fylgi en Geir.
b Einn, tveir og GeirÁ sundi samfylkingarinnar í gær var einróma á ákafur stuðningur við að slíta stjórnarsamstarfinu strax. Ef forysta flokksins heykist á að fylgja því eftir, þá verður flokkurinn fúasprek eftir. Samfylkingin má ekki sýna af sér sama tvístígandaháttinn og Geir hefur pínt þjóðina með undanfarna mánuði. b 21 enero Kæri forsetiNú þarf þjóðin á forseta sínum að halda. Ég skora á þig að rjúfa þing og skipa hæfa utanþings stjórn til að takast á við þau vandamál sem að steðja. Stjórnvöld virðast hafa framið landráð af gáleysi og eru á góðri
leið með að glutra niður sjálfstæði þjóðarinnar. Svo mikið er í húfi að við
höfum ekki efni á að sætta okkur við duglausa stjórn. Nú ríður á að hæft fólk haldi um stjórnartaumana og marki stefnuna og gefi fólki von og framtíðarsýn. Þjóðin, sem hefur verið seinþreytt til vandræða, er að verða brjáluð. Margt "venjulegt fólk" tók nákvæmlega þannig til orða á mótmælunum í gær. Þjóðin hefur enga hugmynd um hvað ríkiststjórnin er að gera, eða hvort hún er að gera nokkuð yfirhöfuð. Smáskammtalækningar í formi greiðsludreifingar eru ekki málið. Ætlum við að taka á okkur skuldbindingar sem við getum engan vegin staðið við ? Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hikar við að senda meiri peninga
hingað, þar sem ekki er ljóst hvernig þeim yrði varið. Það er gott. Ég treysti
alls ekki ríkisstjórn og seðlabanka til að ráðstafa þeim gríðarlegu fjármunum á
skynsamlegan hátt. b 20 enero Skilaboðin eru skyr09 enero Kaupa í matinn05 enero Bíl og íbúðÉg er farin að halda að Eiríkur Guðmundsson hafi rétt fyrir sér. Það þarf greinilega að brenna bíl eða hús. Það skilar engu að mæta niðrí bæ á laugardögum til að mótmæla og kíkja í einn bjór á eftir. En fyrst ætla ég að leggja mig og svo kannski hella uppá kaffi .. b 02 enero NafnKreppan virðist stuðla að nýsköpun. Nú þegar eru tveir "aðilar" óskað eftir hugmyndum frá mér að nafni á fyrirtæki sem eru í burðarliðnum. Fyrir svo utan alla hina sem eru að fara útí rekstur en hafa enga trú á mínum nafngiftum. b 01 enero TaliðFólk talar svo mikið í bíómyndunum. Segir réttu hlutina á réttum tíma. Ég myndi örugglega líka gera það ef ég hefði handritshöfund. b BaðiðJæja, þá er ég búin að fara í sjósund. Það var skítkalt .. og blautt b |
|
|