Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas Herramientas Ayuda

Blog


31 octubre

Menu

Það snjóar! yfir mig leiðbeiningum um hollt matarræði. Breski matarþátturinn er stútfullur af fróðleik um hvernig best er að halda sé ungri og fallegri og gáfaðri. Verst að vænt prósent af heilastarfseminni fer í að muna allan þennan fróðleik. (þessvegna skrifa ég þetta hjá mér hérna)

Young & beautiful:
Tómatar
vernda húðina. Jarðaber & bláber minnka líkur á krabbameini og fl. þegar við eldumst og bæta minnið. Spínat getur bjargaða sjóninni með lútín sem styrkir augnbotninn. (líka grænkál, kiwi og eggjarauður). Rauðvín ver okkur gegn hjartasjúkdómum. Feitur fiskur virkar gegn streitu. Kolvetni er gott fyrir langtímaúthald (hvaða hlaupari veit það ekki??). Að borða oft í litlum skömmtum eykur afköst um 25%. Óljóst hvort grænmetisætur eru sterkari, en þær er fljótari að innbyrða hitaeiningarnar :] sem er gott.  Það hefur örugglega haft mikil áhfrif á hagvöxtinn í "gamla daga" þegar fólk fór að taka uppá því að borða kjöt. Þá hafði það skyndilega tíma til að gera fleira en borða.

Pétur Halldórsson hjá ruv á Akureyri lætur einnig rigna yfir okkur fróðleik.
Burnirót er góð við nánast öllu. Stressi, kyndeyfð, eykur þrek og þol, skerpir hugann .. Rússar notuðu þetta fyrir geimfarana, skákmeistarana og íþróttafólkið. Turmeric (guli liturinn í karrý) vinnur gegn alzheimer. Borða indverskt !

Næst set ég saman matseðil úr þessum fróðleik, borða karrý svo ég muni að bjóða fólki í mat.

b

23 octubre

Ég er Snorkurinn

logo
Hvem er du i Mummidalen?

Mitt resultat:
Snorken
Du er Snorken! Du er glad i å eksperimentere og oppfinne ting, selv om det betyr at du må jobbe alene hele vinteren mens alle andre sover!
Ta denne quizen på Start.no
22 octubre

Lið Álftamýrarskóla vann Grunnskólamótið!

Stelpurnar okkar unnu Grunnskólamótið í fótbolta í Egilshöll á sunnudaginn.

Eydís varði 5 víti, hún fær ís. Eru þær ekki glæsilegar!

Stelpurnar okkar unnu Grunnskólamótið!

 
 
21 octubre

grænar konur

Ég var að horfa á Silfur-Egils áðan. Mikið finnst mér Katrín Jakobs skemmtileg og klár. Ég get varla valið á milli hvort ég vil fá hana eða Svandísi sem formann VG næst. Það fer líklega eftir því hvernig Svandís höndlar Orkuveitu málið. Ef hún lætur Björn Inga komast upp með að labba yfir sig, þá er hún dauð í pólitík.
 
b

Aðeins meira áfengi

Ef ríkiseinokun á áfengissölu er svona mikið prinsippmál, hversvegna er sterka áfengið þá undanskilið??
Það þarf ekki að selja áfengi í matvörubúðum til að einkavæða áfengissöluna. Það væri hægt að einkavæða sérverslunina og banna að það sé selt í matvöruverslunum og á bensínstöðum. Engir 16 ára krakkar að afgreiða, enginn Euroshopper bjór í Bónus, aðgengið svipað þ.a. vandamálin ættu ekki að aukast, en kaupmenn fá að græða. Þá hafa allir fengið sitt.
b

Brúnkukrem

 
Nýja brúnkukremið Viður-tan, gerir þig viðurstyggilega brúna. Til sölu hjá Ljenzherranum
 
b

SudoKu

Ohh, Þessi tölvunarfræði, krefst þess að ég hugsi og hugsi .. ég er að bræða úr mér. Getur einhver hjálpað mér með þessa binary sudoku?  
 
su_doku

messa

Biskupinn [leiðrétt: Séra Sigurður Pálsson] predikar í útvarpsmessunni. Það sker mig í eyrun að hann talar bara um "menn" og "manninn" og "hann" og "honum" .. þegar eðlilegra væri að segja t.d. fólk. Þetta orðaval er útilokandi, það lætur mér finnast hann ekki tala við mig, að ég þurfi að þýða orð hans til að þau nái yfir mig. Biskup [leiðrétt; Sr. Sigurður] lítur á konur sem jaðarhóp, rétt eins og hann lítur á lesbíur og homma sem jaðarhóp sem er ekki sjálfsagður í söfnuðinum.
 
b

Skemmtanir

 
Ég verð að skrópa á aðalfundi Fram til að fara í partý með Dorrit. Það á að vígja nýja lækningahúsið við Bláa Lónið. Húsið sem fékk hönnunarverðlaunin í gær. Ég hefði auðvitað getað valið að mæta frekar hjá Fram og drekka kaffi úr plastbolla, en eftir laaanga umhugsun ætla ég frekar í koktail Party
Þá er eins gott að ég verði dugleg í dag að forrita svo ég hafi tíma til að standa í þessu djammi. Hvort er skemmtilegra að læra eða djamma?   humm.. hæfileg blanda er líklega best, eða eins og Laxnes gaurinn sagði: "fátt er leiðinlegra en vera sífellt að skemmta sér".  Ég veit a.m.k. að ég gæti ekki skemmt mér ef námið væri í klúðri.
Nammi lykt úr eldhúsinu! Appelsínukakan er örugglega tilbúin.
 
b
18 octubre

Múgæsing

Nú er komin upp mikil múgæsing í BI hópnum mínum í vinnunni. Við ætlum öll að æfa fyrir hálf maraþon á næsta ári.  Margir horfa til hlaupastíls námskeiðs þar sem við getum lært að hlaupa eins og fólkið í Kenýu, þá verðum við nánast sjálfkrafa sigurvegarar.
Ef það gengur vel, gæti t.d. þetta maraþon orðið næst : http://www.marathontour.com/medoc/index.shtml
Þarna eru drykkjarstöðvarnar í frönskum anda, hin mörgu rauðvín héraðsins kynnt á km fresti. "The course reads more like a wine list than a race course". Mér skilst það séu töluverð afföll og fáir hlauparar skili sér alla leið í mark.
 
b
17 octubre

úrslitin .. loksins

Ég átti alltaf eftir að birta úrslitin í sumarlangri æsispennandi mergrunarkeppni. Berlínar maraþons, íbúðar, peninga og skólastress að þvælast fyrir mér. Svona lítur þetta út:

5,6%             Ásta

4,1%             Birna

3,2%             Vala

2,6%             Magga

-0,1%            Yngvi

Sumsé, Ásta sigraði með glæsibrag og ég varð í öðru sæti. Þess ber þó að geta að ég sá um skráningu og samdi reglurnar og er ekki laust við að ég lýsi mig vanhæfa. Ef ég hefði sigraði þá hefði ég krafist afsagnar.

Hvað var aftur í verðlaun? Annað er sexy kroppur?  já bikarinn Sexy-Bastard og ís? Hvað með ferð á pöbbinn og stór af krana

 

b

 

Jól í skókassa

Jól í skókassa er verkefni sem er unnið af 13 manna hópi úr KFUM og KFUK og felst í því að setja nokkrar gjafir í skókassa og senda til þurfandi barna í Úkraínu. Markmiðið með verkefninu er að mæta þörfum fólks og sýna kærleika Guðs í verki. Úkraína er stórt land og þar búa um 50 milljónir manna. Á svæðunum þar sem skókössunum er dreifter allt að 80% atvinnuleysi og fara kassarnir meðal annars á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra foreldra.
Þetta er í fjórða sinn sem verkefnið er unnið. Fyrir jólin 2004 söfnuðust 500 skókassar, ári síðar 2660 og fyrir síðustu jól 4900 gjafir!  þetta ætti að fara í Excel og línurit ..  Vá, afskaplega línuleg þróun á þessum 3 punktum. Ef svo heldur fram sem horfir þá verða kassarnir 7100 í ár.

Byrjið á að finna tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Pakkið lokinu sérstaklega inn svo hægt sé að opna pakkann. Setjið svo gjafir eins og ritföng, föt, leikföng, hreinlætisvörur og sælgæti í skókassann. Best er að setja einn hlut úr hverjum þessara flokka í kassann. Setjið að lokum 300-500 kr í umslag efst í kassann fyrir sendingarkostnaði.
www.skokassar.net

Staðlaráð Íslands

 
Það er eiginlega orðin staðall að ég skila heimaverkefnum 2 mínútum áður en MySchool kerfið lokar á mig. Alltaf tímanlega stelpan!
 
b
 
16 octubre

Efni

 
Ohhh! Mér finnst svo gaman í skólanum. Ég vildi ég hefði efni á þessu
 
b
14 octubre

Rýtingurinn

 
Hver stakk hvern í bakið? og MEÐ HVERJU? Silfur Egils var matarmikið að þessu sinni :]
Frænka mín Agnes Braga lá ekki á liði sínu frekar en fyrri daginn. Ég er ekki endilega sammála henni, en það er alltaf gaman að heyra í fólki sem hefur skoðanir og kynnir sér málin. Nú keppast Framsóknar- og sjálfstæðismenn um að rægja hverjir aðra eftir að hafa verið tekir með hendurnar í nammiskálinni.
 
b
13 octubre

Ullum á kjósendur

 
Kjósendur höfnuðu framsókn í síðustu borgarstjórnarkosningum en samt kippti Villi Binga inní borgarstjórnarmeirihlutann. Svo þegar Sjálfstæðisfólk var upptekið við að karpa, þá hljóp hann í sæng með minnihlutanum. Mér finnst skelfilegt að það sé ekki hægt að mynda meirihluta án hans. Hvernig er hægt að treysta honum? Hann hefur engöngu áhuga á eigin frama. Við horfðum á Dag og Binga kasta skít hvor í annan í Kastljósinu. Eru þeir að fara að vinna saman? VG hafa verið óþreytandi að gera grín að Framsókn. Eru þau að fara að vinna með Binga? Hvað með vilja kjósenda? Þetta er gömul saga og ný í íslenskri pólitík að Framsókn sé við völd án fylgis. Lýðræði, sklýðræði.
 
11 octubre

Doris Lessing

 
Ok, ég er alveg sátt við að Doris Lessing skuli hafa fengið Nóbelinn :]
ekki síst fyrir að hafa sagt við fréttamenn "I've won all the prizes in Europe, every bloody one"
Kúl kelling
 
b
 

Réttar upplýsingar

 
Núna þegar ég er í skólanum gef ég mér lítinn tíma til að sinna heimilisstörfunum. Þ.a. einn daginn þurfti dóttir mín að þvo sjálf íþróttafötin sín. Hún var varla kominn inn í þvottahús þegar hún kallaði: "Mamma! á hvað á ég að stilla þvottavélina?"
"Það fer eftir því hvað stendur á fötunum" kallaði ég til baka.
"Handboltadeild FramKallaði hún ...
 
b

stuð í Berlínarmaraþoni

 
hér er linkur á vídeó af leiðinni í Berlínarmaraþoni. Trommuband undir brú. Svona var Berlín, jazz og trommur. 
 
b