| Profilo di Birnafrú birnaFotoBlogElenchi | Guida |
|
31 ottobre OfbeldiMér þykir verst að líklega þarf að grípa til ofbeldis til að bersyndugir ráðamenn fari frá völdum. Vesen b
29 ottobre Kreppan er búin !Nú er nóg komið af leiðindum. Förum í búðir á morgun eftir vinnu, fáum okkur hvítvínsglas saman og kaupum kjól ( Kjóll og hvítt ). Nú borgar sig að versla jólagjafirnar snemma, áður en túristarnir kaupa allt upp á lága genginu. b
24 ottobre ÚrvalAðalvandamálið er að í stjórnkerfi Íslands er "valinn maður í hverju rúmi". Við höfum látið það viðgangast of lengi.
b 23 ottobre bréf frá konuBirti hér þetta magnaða bréf sem mér barst: Hvern fjandann er fólkið að meina? 19 ottobre Fimm leiðir til lítillækkunnarSóley Tómasdóttir skrifar um Drottnunaraðferðirnar fimm
Ágæt og þörf samantekt, við þurfum ný sjónarmið núna þegar þau gömlu eru útbrunnin.
Mér fannst reyndar vanta sjöttu aðferðina, daður. Mikið notuð til að ómerkja málflutning kvenna.
b Kjarninn
b 13 ottobre edubuntuÉg er a ð hugsa um að setja upp edubuntu á vélina mína um helgina. við Baldur ætlum að prófa það aðeins .. og drafta svo skýrslu um kosti/galla til að senda menntamálaráðherra til að auka kúlið og draga úr kostnaði í menntakerfinu, svona í kreppunni. Yngvi má leggja orð í belg ef hann sé stilltur.b SvefnvanaÉg þori ekki að fara að sofa. Ómögulegt að vita hvað gerist á meðan ég sef.
b 09 ottobre Rekið Davíð (hann segir aldrei af sér)To: Ríkisstjórn Íslands
Davíð Oddsson verður að segja af sér til þess að fólk öðlist traust á aðgerðum seðlabanka Íslands. Allir erlendir seðlabankar hafa menntaða hagfræðinga við stjórnvölinn, eða eins og það heitir á góðri íslensku: Fagfólk. Davíð Oddsson er fagmaður þegar það kemur að pólitík, en seinustu mánuðir hafa sýnt að hann hefur ekki nægilegt innsæi í alþjóðleg fjármálaviðskipti til að takast á við alvarleg vandamál af þessu tagi. http://www.petitiononline.com/fab423/petition.html b kæri dýriþetta er nú að verða ágætt. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni uppá svona þvaður. Ekkert er Árna að kenna hvað þá Davíð, og hvað þá Geir. Bretarnir eru eitthvað svo bráðir og í erfiðri stöðu. Ríkisstjórn íslands gerði allt rétt.
Ég hef orðið fyrir stórkostlegum vonbrigðum með Samfylkinguna í þessu stjórnarsamskiptum. Hún virðist máttlaus og valdalaus og lætur ráfandi forsætisráðherra um stjórnartaumana. Það eina sem ég hef séð til Samfylkingarinnar sem ég vildi sjá, var hvernig Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur staðið sig, alein að því er virðist, gegn virkjanaþrýstingnum.
Hvað gerist nú ef rússagullið flæðir hingað. Rís þá rússneska olíuhreinsunarstöðin orðalaust á Vestfjörðum ?
b Allt hægtKvennabankinn Auður Capital stendur vel, sem er gott. Ég er að hugsa um að fara útí business. Nú er hægt að fá fyrirtæki á gjafaprís. (mikið rosalega er nettengingin hæg, er verið að senda peninga úr landi yfir snúruna ?? )
b Siðvætt samfélag ?skyldi nú renna upp tími siðvæðingar, að gildi eins og dugnaður, heiðarleiki, gæska, umhyggja, tillitssemi, samvinna verði í hávegum höfð í stað peninga og valda. Skyldi ungmennafélagsandinn ná fótfestu á ný? Við getum bara vonað.
b RekstrarvandiNú er fundað í Stjórnarráðinu og víðar. Vooooonandi eru þau að reka Davíð.
(hmmm eða nei annars, þá fær hann ósóma-eftirlaun) þá getum við sett í staðin .. hmmm (jóla-óskalisti)
b 08 ottobre TímavélinTraustiðég treysti ekki rússunum .. þetta er eins og að fara í okurlánarann þegar allt er í steik, og svo kemur handrukkarinnb TreyjanVonandi er Geir loksins búinn að setja Davíð í spenitreyju.
b 07 ottobre Sameining?!Á að sameina Fram og Fjölni !? hver hefur áhuga á því. Íþróttafélag er annað og meira en rekstrareining.
Nú vil ég að félagslegum viðhorfum verði gert hærra undir höfði innan Fram rétt eins og Ármann Jakobsson óskar samfélaginu öllu. Svo vil ég að snobbið fyrir völdum og peningum flytjist af landi brott, a.m.k. úr íþróttahreyfingunni.
Benedikt vill að sameinað félag heiti Fjam :]
b |
|
|