| Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas | Ayuda |
|
29 noviembre MálverkBeggó bað mig um að "geyma" Landmannalaugamyndina fyrir sig ...
Ég sagði JÁ eins hratt og ég gat. Frábært!
Nú er ég með flottustu myndina hans inní stofu hjá mér :]
b 28 noviembre HlutabréfaviðskiptiÉg skilaði af mér skýrslunni um sjálfvirkan hlutabfréfabraskara í gær
og flutti fyrirlestur. Glærurnar voru í bláum bankalegum tónum.
Fullt af línuritum og súluritum .. en aðallega: ég græddi 11% meira en ICEX-15
þrátt fyrir að hann hafi hægnast um 89% á þessum tæpu 2ur árum.
Ég er með 10 hugmyndir að endurbótum á verkefninu til að gera það nothæft.
b 25 noviembre Kaupum ekkert !Kaupum ekkert dagurinn er í dag.
Segjum efnishyggjunni stríð á hendur og kaupum ekkert í dag.
Hver segir að það sé skylda að hafa hagvöxt? Er ekki nóg til ?
b 24 noviembre Búin í prófum !síðasta prófið var í gær. Aðferðafræðin.. Váá! hvað ég las lítið fyrir það
eins gott að kennararnir frétti ekki af því. Ég reyndi að hljóma þvílíkt gáfulega í munnlega prófinu.
Núna fæ ég loksins tíma til að horfa á verkefnið mitt. Ég er næstum því búin að gleyma um hvað það er.
Vonandi virkar það eins og mér sýnist að það ætti að gera .. það skal ganga upp.
Ég hef ekkert æft í 2 mánuði enda orðin að spýtuka.. kellingu, feitri spýtukellingu.
Vöðvabólga, höfuðverkur og leti. Ég ætla sko á karateæfingu í kvöld - halló lífið, hér kem ég.
prófin búin, prófin búin .. trall-la-la-la-læ
Fer á Krua-thai í hádeginu með Ástu, góður matur og bjór og spjall, æðislegt. Ég elska alltaf þann sem gefur mér að borða. Elska mömmu mest af öllum. Ég ætla að bjóða Sellunum í franskt kvöld. Frönsk lauksúpa, franskt hvítvín og frönsk súkkulaðikaka. Bon apetit !
Mér fannst eiginlega sorglegt að Ómar Ragnarsson hefði fengið styrk frá Landsvirkjun.. það er alls ekki sama hvaðan peningarnir koma. Enda var hann flóttalegur í augunum kallgreyið í fréttatímanum. Þetta eru bara 4milljónir, væri ekki hægt að skrapa svona upphæð upp einhversstaðar annarsstaðar ? SPRON ? Fjárlaganefnd ? Frjáls framlög ?
.. var ég búin að nefna það ? prófin eru búin, prófin eru búin ..
b
15 noviembre ZzzzzzzzzzÉg sofnaði í gær og missti af fyrirlestri hjá Anders .. damn! svo svaf ég í 15 tíma í nótt ! hvað er í gangi !?!?!
Í dag ætla ég að gera allt sem ég hef hundsað undanfarið, henda í þvottavél, fara með flöskur og blöð í Sorpu, redda einhverju fyrir gluggann hjá Eydísi og gera eitthvað í peningamálunum, 1500kr duga ekki lengi á einu heimili. Aumingja Eydís er komin með peningaáhyggjur en ég er alveg sali-róleg yfir þessu.
Þetta reddast maarr!
b 14 noviembre FjúfffffffÉg er búin með 1 próf. Modelling and Verification hjá prófessor Önnu.
Þetta var munnlegt próf, sem hentar mér oftast mjög vel, samt brillerari ég ekkert. Ég var a.m.k. ekki klöppuð upp.
Kennarinn í mér og leikarinn í mér voru líklega báðir sofandi. Hikst og stam var það sem Önnu og Luca var boðið uppá, en þau voru samt ekkert svo vond við mig. Ég vona að ég fái 9 .. kannski bara 8 .. fæ að vita það á eftir.
ok .. ég fékk 8.5 í prófinu -> 9 fyrir kúrsinn. Það sleppur
b 13 noviembre fénaðurBeggó var með myndlistasýningu í FÍ salnum um daginn.
Mogginn mætti að svæðið og tók mynd af okkur. Hún lenti í flokknum "fólk fénaður og fyrirbæri"
Við erum ótrúlega menningarleg
b
10 noviembre skóli og hlutabréfÍ skólanum, í skólanum, er skemmtilegt að vera ...
Ég geri mest lítið annað en að læra. Búin að skrópa í karate í mánuð og hef farið 1x (einu sinni) út að hlaupa síðan ég hljóp hálft maraþon á Selfossi í haust. Ekki gott að æfa ekki, en frábært að læra. Mér fer fram ..
Um daginn hnoðaði ég saman forriti sem lærði af því að lesa inn lýsingu á skákum, hvaða stöður væru líklegri til að leiða til vinnings.
Þetta voru mjög einfaldar lýsingar en við áttum að láta forritið okkar "læra" að tefla betur.
Sama forrit á að geta læra á hvað sem er, ef því er lýst á svipaðan hátt. Vektor sem lýsir stöðunni og svo vinnur maður eða tapar.
Núna er ég að ath hvort ég get ekki látið forritið læra að versla á ICEX (Íslenska hlutabréfamarkaðinum). Það lítur eiginlega mikið betur út en ég þorði að vona. (buy low, sell high) Í fræðunum heitir þetta að markaðurinn sé ekki mjög skilvirkur.
Ég geri grein fyrir þessu hlutabréfa verkefni eftir prófin. Núna langar mig helst til að vinna í verkefninu, en ekki endilega eyða tímanum í að lesa undir próf.
Spurning hvort ég missi áhugann á hlutabréfunum þegar ég verð búin að selja öll mín :]
b |
|
|