Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas Herramientas Ayuda

Blog


29 noviembre

Actavísdómur

 
Rauðar pillur frá Actavis eru 7x dýrari hér en í Danmörku. Að sögn Actavis er þetta vegna þess að markaðirnir "eru svo ólíkir". Á danska markaðinum er samkeppni.
 
b
23 noviembre

Jólin koma

 
Prófið búið! ca. 9
 
Nú ætla ég að hlusta á fréttirnar á meðan ég steiki silung og sötra rauðvín. Jólin koma!
 
b

herra Birna

 
Ég skil það vel að fólk pirri sig yfir innlegginu hennar Steinunnar Valdísar þingkonu.
Hversvegna geta konur ekki heitið ráðherrar. Við erum vön því og gegnsósa af viðhorfum okkar eigin samfélags. En þegar málinu er snúið við og fólk spurt hvort karlráðherrar geti þá ekki eins heitið ráðfrúr eða ráðmaddömur, þá hljómar það ekki eins vel. Getur verið að það sé spælandi að vera kallaður kona, en eigi að vera upphefjandi að vera kölluð karl?
Ég hef heyrt stolta feður segja að stelpan þeirra sé eiginlega stráka-stelpa. Ef þeir segja að strákarnir þeirra séu stelpu-strákar, hvað þýðir það?
 
Annars veit ég ekki hvað ég er að blogga. Ég á að vera að lesa undir próf. En mér finnst ég vaxin uppúr því að taka próf. Ég vil bara læra og tala við lært fólk.
 
b
16 noviembre

Enga steypu !

 
Við vinnufélagarnir vorum að ræða saman.
Þetta kom útúr því:

Við þurfum ekki mislæg gatnamót. Minnkum frekar toppana í umferðinni.

Látum skólana byrja á mismunandi tímum 
Fólk vinna á mism tímum t.d. konan milli 7-3 og maðurinn á milli 10-6
börnin þurfa styttri tíma í gæslu og álagið á vegakerfið snar-minnkar

Engin mislæg gatnamót - leysum málin án steypu

b

08 noviembre

Bull shit

 
Við Indiði verðum með fyrirlestur á morgun. Hann er ekki tilbúinn, en við höfum ákveðið að glærurnar verði appelsínugular og nafnið á lestrinum verður
"Bullshit generator með post-modernískri skírskotun"
b
04 noviembre

Hikandi

 
Íslensk alþýða er aldrei á móti stjórnvöldum. Hún er alltaf .. hikandi.
 
Vá! rosalega er blogg-smiðurinn minn góður. Hann vitnar í Guðberg Bergsson!
 
b

Blog-generator

 
Ég er í hóp-verkefni í Málvinnslunni. Við Indriði erum að skrifta setningasmið fyrir íslensku. Við gefum upp eitt orð og smiðurinn býr til sennilega íslenska setningu af tiltekinni lengd. Hér eftir verður fljótlegt fyrir mig að blogga. Ég þjálfa þennan blogg-smið á texta frá mér betri bloggurum og reikna fastlega með að frá og með morgundeginum verði blogfærslurnar innihaldsríkar og skorinyrtar. Bíddu bara ..
 
b
02 noviembre

Réttarfar á Bónusprís

Samráð er hræðilega alvarlegt! Alveg voðalegt! Allir muna hvernig fór með olíusamráðið. Bíddu.. hvernig fór það aftur? Hver fór í fangelsi? Enginn!
Stór-glæpóninn Þórólfur Árnason var látinn taka pokann sinn sem borgarstjóri R-listans og ég man eftir heilsíðu auglýsingum þar sem óbreytt starfsfólk olíufélags "baðst afsökunar". Eins og bensíntittir hafi tekið ákvarðanir um olíuverð. Hversvegna fór Kristinn ekki í fangelsi?
 
b
01 noviembre

Fundin !

 
Það er Nanna sem þýðir Tiger bæklinginn ! Shnilld
 
b

Við þurfum enga Spaugstofu

 
Ég elska Ísland, land hins rað-nauðgaða neytanda.
Verðkannanakjöt! Þetta er of fyndið til að verða sorglegt.
 
b