Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas Herramientas Ayuda

Blog


28 diciembre

KB og Kanarí

Ég má nú varla vera að því að korta þetta (hóst hóst)
Núna er ég svo upptekin í vinnunni... hjá KB banka.
 
Ég vinn sem verktaki við prófanir hjá henni Rósu ljósu og reyni að skrapa upp einhvern pening, svo ég lifi af seinni önnina í skólanum.
 
Svo förum við Palli til Kanarí í janúar :]]] ég tek með mér tölvuna og þarf að lesa skóladót og skrifa greinina mína (og baða mig í sól og rauðvíni og spila golf og hlaupa og synda ... ) 
Nú hlýtur skammdegið að verða styttra/bjartara/léttara.
 
b
20 diciembre

Skyrbjúgur

Í morgunmat hjá pabba um síðustu helgi fundum við nafn á nýjan jólasvein..
 
  • Skyrbjúgur

Ég þarf að uppfæra myndina af mér, því ég er komin með nýtt útlit. Krullur !   Ég fór í permó í morgun. Hvað er eiginlega langt síðan ég hef verið með svona lokkandi lokka !?

b
18 diciembre

..

Vá allir er' að gera ða gott nema ég.
 
Hvert sem litið er er fólk komið með græn og gul belti og Magga hljop 30km í síðustu viku!
En ég hef ekkert hreyft mig, bara mætt í jólaglöggið :} Það var mjög gaman. Ég ætla að sýna mig á æfingu í kvöld.
 
Ég er búin að vera að lakka gluggakisturnar heima. Þetta tekur ótrúlega mikinn tíma og ég er komin með uppí háls af því að hafa allt á hvolfi. Gardínur í sófanum og blómapottar útum öll gólf. Nú er nóg komið. 3 umferðir verða að duga.
 
Ég er að raða saman næstu önn. Ætla að taka Agent kúrs hjá Kristni .. og mig langar til að fullvinna hlutabréfadótið og fá einingar fyrir. Þarf að tala um það við Yngva.
 
b
12 diciembre

LÍN

 
Jæja, ég er búin að sækja um námslán .. 
On the road again,
There's nothing like to be on the road again
b
11 diciembre

veikindi

Við Eydís skiptumst á að vera lasnar í síðustu viku. Það var gott að vera heima hjá henni stelpunni en 3ja vikna kúrsinn minn er heldur sundurslitinn ..
Við erum að forrita LeikjaServer, minn hópur sér um Matador leikinn. Kennarinn, Daníel, er rosa góður. Ég reyni að læra eitthvað af honum.
 
Annars er ég aðallega í heima-stuði. Ég setti upp helling af jólaseríum í gær og lakkaði allar gluggakisturnar í íbúðinni. Ég fíla það alltaf í botn að "gera" eitthvað svona. Mála, smíða, flísa ... mig langar mest til að endurnýja eldhúsið núna.
 
b