| Profilo di Birnafrú birnaFotoBlogElenchi | Guida |
|
30 dicembre Afsláttur af uppeldiHundaeigendur fá afslátt af gjöldum ef þeir hafa farið með hundana sína á hlýðni námskeið. Hvernig væri að gefa foreldrum afslátt á leikskólagjöldum ef þeir sækja uppeldisnámskeið? og hvernig væri að kenna grunnatriði barnauppeldis í 10.bekk? Það væri gagnlegra en margt annað.
voff 29 dicembre Baldur er kominn til JapansÉg sit hérna heima og er búin að naga næstum allar neglurnar. Ég skutlaði Baldri og Pétri útá völl í gærmorgun og loksins fyrir 5 mínútum fékk ég sms. Þeir eru komnir heilu og höldnu á hótel í Japan. Símarnir virka ekki, en hótelið býr yfir neti, en ég sé þá ekki á msn. Fyrsta áfanga er náð. Allir lifandi og meira að segja ég við sæmilega heilsu. Baldur ætlar að setja upp bloggsíðu. "Sleepless í Japan" eða "Made in Japan" eða eitthvað slíkt .. kemur í ljós. Ég set linkinn þá inná síðuna mína. Hann er a.m.k. í heilu lagi. Ég get haldið áfram að narta í laufabrauð og pússla.
b 21 dicembre klikkað liðNaut: Ástvinir þínir elska klikkaðar hugmyndir eins og þú. Engar efasemdir! Styddu allt sem þeim dettur í hug, líka þær hugmyndir sem þú skilur ekki alveg.
ég hlakka til að heyra hvaða hugmyndir þetta eru sem liggja í loftinu
b 14 dicembre HandavinnaBaldur says: Manu cyclum Fortunae vertam. birna says: I do not know which way to turn. Yngvi says: Gæfan fer í maníska hringi Baldur says: manu = með höndinni (sbr. Manicure) verto = ég sný -> vertam = ég mun snúa birna says: þú munt hand-snúa gæfuhjólinu ef það snýst ekki þér í vil Baldur says: Já ! Erfiður aldurUnglingaskólakennarinn austur á landi er teiknibólugrafinn
b 10 dicembre StjörnurnarStjörnuspáin í mbl.is er búin að komast að því að ég er tuddi
Naut: Heimurinn gengur ekki jafn hratt og þér þætti æskilegt. Ef þú tekur því með brosi á vör, ertu mjög þroskaður. Fyrir alla muni ekki reiðast út af því.
b KveðjustundNágranni minn er að flytja, en ég haga mér samt ekki eins og Ljenzherrann:
b Japan og ÍslandElsku sonar-ómyndin fer til Japans 28.desember. Það kom skelfingarsvipur á mig þegar ég fattaði hvað það er skammt undan. Þetta er alveg eins og í ævintýrunum í gamla daga .. hann fær nesti og nýja skó og svo er hann farinn útí heim, orðinn stór, stendur á eigin fótum, .. Baldur er ekki alveg laus við skelfingarsvipinn sjálfur. En jólaundirbúningurinn er á fullu gasi. Við skárum út laufabrauð í nokkrum húsum í Breiðholtinu um helgina. Lærðum að skera út Betlehemstjörnuna og útfærðum nokkur falleg Kanji-tákn. Sól, barn, himinn, kona, tré, .. Blanda af ólíkum menningarheimum. Laufabrauð og Kanji
b 03 dicembre VerðmætiEkki eru allir jafn-vitlausir sem maður þekkir. Yngvi segir:
b 01 dicembre óþolandi spurningarÞetta er ágæt spurning hjá Kolbrúnu. Hversvegna eru krakkar klæddir eftir kyni á fæðingardeildinni? Ég hafði nú ekki hugmyndaflug sjálf til að velta þessu fyrir mér. Líklega flokkast þessi vangavelta undir öfgafullan feminisma. Enda er pirrandi að horfa gagnrýnið á ríkjandi viðhorf eða hefðir. Það er erfitt að hugsa nýjar hugsanir. |
|
|