Birna 的个人资料frú birna照片日志列表 工具 帮助
2月26日

Vísinda erótík

 
kennarinn minn Yngvi Björnsson hefur skrifað nokkrar greinar, t.d. þessa :
"Solving 7x7 Hex with domination, fill-in and virtual-connections"
 
þetta er ekkert nema argasta erótík =:-o
 
b

Framtak

 
því hefur stundum verið haldið fram að heimskt fólk stofni fyrirtæki
hinir kláru reikna og gera viðskiptaáætlanir og sjá að það er vonlaust og alltof mikil áhætta
 * hugsa minna
 * gera meira
Frank Tyger segir líka að „Framfarir koma ekki frá ánægðu fólki.“
 * vera fúl
 
þetta er allt í áttina
 
b

Eydís fékk 9,3 í meðaleinkunn, ég fer á hausinn

2月24日

Ég er kókaín

Your Personality Is Like Cocaine
You're dynamic, brilliant, and alluring to those who don't know you.
Hyper and full of energy, you're usually the last one to leave a party.
Sometimes your sharp mind gets the better of you... you're a bit paranoid!

2月23日

útgjöld

 
I den tid þegar ég var á launum, eyddi ég hiklaust 250þús á mánuði.
Núna er eyðslan um 100þús kr lægri, nálægt þessum 2000kr. á dag sem við Eydís settum okkur. Án þess að ýkja margt hafi breyst.
Merkilegt ..
 
b
2月22日

Hva! ekkert klám?)

 
Nú er útséð um að Klám & Fun ráðstefnan verði haldin hérálandi í ár.
Ráðstefnugestir fengu ekki gistingu á hótelinu frekar en María & Jósep forðum daga.
Landanum er ekki alls varnað. Ég er bara stolt.  Ekki allt er falt fyrir peninga.
 
Bloggheimar skjálfa talsvert yfir þessu máli, enda ástæða til. Þetta er tímamótaviðburður.
Sumir vilja meina að "Ferðamannaiðnaðurinn" hafi þarna misst stóran spón úr aski sínum.
Sjálfsvirðingin verður ekki í askana látin. Það er ekki hægt að gera hagvöxt að mælikvarða allra hluta. Enda er hárvöxtur betri mælikvarði á lífshamingju er hagvöxtur segir Vala
 
b
 
heimild Vala og mbl.is

heilsufarsskýrsla

 
Vá hvað ég er búin að vera lasin. Ég var of slöpp til að senda sms uppí skóla til að láta vita að ég væri veik. Eydís gerði það fyrir mig þegar hún kom heim úr sínum skóla. En ég er orðin skárri núna, get loggað mig inn, og skrifað 2-3 setn í samhengi, skjálfandi eins og gamalmenni. Nú finnst mér vera nóg komið af veikindum.
 
b
2月19日

skilgreiningar

 
Sumt fólk hugsar skýrar en við hin ..
Ármann Jakobs hugsar um frjálsar ástir
 
b
2月17日

Hvar var Heiða !?

Nú er ljóst að Eiríkur rauði syngur í Eurovision fyrir okkar hönd
Eydís kaus hann, við Baldur erum næstum alveg sátt ..
Hér er stjörnugjöf okkar Baldurs (mest 5 stjörnur)
Eydís var fjarverandi, stelpupartý hjá Áslaugu ..
 
Flytjandi - Lag             Birna   Baldur
?     - Eldur                  3      3,0
Heiða - Heilinn minn           4      4,2
(dude)- Bjarta brosið          1      0,8
Eiríkur - Ég les í lófa þínum  4      4,1
Bríet Sunna - Blómakjaftæði    1      0,5
Matti Mastt - Húsin hafa augu  3      3,8
Jónsi  - Segðu mér             3      3,7
Hafsteinn - Þú tryllir mig     5      4,5
Sjonni Brick - Áfram           2      2,8
 
Við höfðum svooo mikla trú á Hafsteini, töff lag
 
og ég lærði nýtt orð
Hago = Happy-happy-go-go
 
b
 
2月15日

Ég skellihlæ !

 
Framleiðendur klámefnis fyrir netmiðla halda þing á Íslandi !
til að styrkja viðskiptatengsl, taka upp klámefni og skemmta sér
´
fréttatíminn getur a.m.k. verið skemmtilegur :]
 
b
2月14日

Fréttir !

 
Þegar Eydís var lítil, þá hélt hún að það væri skylda að hlusta á fréttir ..
 
en annars er það svo merkilegt að fréttatíminn er alltaf jafn-langur, þó ekkert sé í fréttum. Hvað með að segja; "Nú verða sagðar fréttir: Í dag er ekkert í fréttum". Eins og tilkynningar frá Vitamálastjórn í gamla daga. Ef allir vitar voru í lagi, þá var engin tilkynning, en það var tilkynnt sérstaklega.
Svo er hægt að nota dauða tímann í að sýna eitthvað skemmtilegt. Mér finnst t.d. að sjónvarpið ætti að verðlauna skemmtilegustu auglýsingarnar með því að sýna þær sem aukaefni, ókeypis.
Auglýsingarnar eru ágætar, (nema kallinn með með stífakrampa munninn að selja hreinsiefni). Auglýsingarnar eru eiginlega stuttmyndir og betri en margar bíómyndir. Ætli það væri ekki hægt að sigra í stuttmyndasamkeppni með auglýsingu?
 
b
 

Eydís samdi ljóð :

 
 - ljóð -
Þegar allt var betra
varst þú við hliðinámér
Þegar ég var glöð
varst þú við hliðnámér
Þegar ég grét
varst þú við hliðinámér
en núna ert þú að gráta
útaf mér!
<3
2月13日

JSB

jæja, ég keypti mér mánaðarkort í JSB og mætti í tækjatíma áðan með ítarefni úr Þjóðhagfræðinni.
Það er ótrúlegt hvað er hægt að skrifa mörg orð um þjóðhagfræði; Alþjóðaviðskipti, gengi, viðskiptajöfnuður, hagsveifla, heildarframboð, peningamálastefna . Nú stendur til að mæta á morgnanna (bara létt) og svo aftur á kvöldin (líka létt - best að fara vel með sig til að fæla sig ekki frá).
Svo þegar kjarkurinn og fyrra þrek er komið aftur heim í hús, (og þessi leiðinda lungna þemba farin) þá er það karate og hlaup. Dat's mí!

Mig langar í hvítan bol með bláum stimpli "EIGN ÞVOTTAHÚSS SPÍTALANA"

b

2月11日

pólitík

Kannski er eins gott að ég hef ekki verið að skipta mér of mikið af pólitík hingað til. Látið nægja að þusa yfir mér og mínum. Mér finnst að alltof margar ákvarðanir séu teknar á ómálefnalegan hátt, með eiginhagsmuni og klíkuskap og þekkingarleysi að vopni. Ég hef séð of vel uppá síðkastið hvernig svona ákvaraðnir eru teknar og ég er reið. Það er ekki fyrr en mér tekst að beisla reiðina og koma henni í skynsamleg orð að hugsanlega væri hægt að áorka einhverju. Það er ekki núna.

Hæfu, vel gefnu fólki er haldið frá völdum því það ógnar hinum. Nýjasta dæmið er Margrét Sverrisdóttir. Ég skildi aldrei hversvegna hún varð ekki formaður Frjálslynda flokksins fyrir löngu. Glimrandi snjöll og "frambærileg".

Anna vinkona er alltaf að hvetja mig að fara í pólitík. Hún hefur gaman af að hlusta á mig belgja mig, en ég veit að það þarf snyrtilegri og kurteisari framsetningu á málum til að ná árangri. Ég ætla að taka nokkra jóga-tíma til að temja hugann .. eða "anger management" kúrs. Skyldi vera boðið uppá slíkt í HR?

b

vitnað í grein ..

 
Ragnhildur Sverrisdóttir skrifaði frábæra grein um það viðhorf að kynferðisafbrot gegn konum/börnum sé bara baráttumál kvenna. Feministar og annað fólk. Kemur það karlmönnum ekki við ef konu er nauðgað ? kemur það karlmönnum ekki við ef brotið er á barni ?  Kemur það mér kannski ekki við ef karlmanni er misþyrmt ?
Ég er líka orðin dálítið hugsandi yfir því hvað Breiðavíkurmálið fer hátt í þjóðfélaginu (ofbeldi gagnvart strákum) en það var aðallega talað um fjármálaóreiðu í Byrginu! Hafa fimmtugu kallarnir í ráðuneytunum meiri samúð með neyð stráka af þeirra eigin kynslóð en yngri kvenna?
 
og hversvegna er Hannes Hólmsteinn ennþá á lista sjónvarpsmanna yfir þann sem sniðugt er að tala við um alla hluti. Það er ekki lengur mikilvægt að hlera hvaða hljóð er í Davíð Oddssyni, það skiptir engu máli lengur.
 
b
2月10日

veður

 
Mikið kann ég vel við veðurfréttirnar í Ríkissjónvarpinu. Vinalegt, skynsamlegt, jafnvel nördalegt fólk kíkir til mín og spjallar um veðrið. Algerlega án þess að vera "hresst" eða hipp og kúl. Enginn Kastljóssbragur yfir þeim. Mjög notalegt.
Ég vona að veðurfréttirnar verði ekki Ameríkaniseraðar fyrr en ég verð komin útúr heiminum eða til Ameríku.
 
en talandi um það.. nú á að skella sér í stríð við Írani. Ég hélt að verið væri að keppast við að lofa að senda strákana heim frá Írak. Er það kannski málið? Að senda þá frá Írak og beint til Íran? Hvað er eiginlega langur tími eftir af kjörtímabilinu?
 
b
 

eðlis- og efnafræði

Two atoms were walking down the road and collided into each other.
"Are you all right?" one of them said to the other.
"No, I lost an electron," the other one yelled.
"Are you sure?"
"Yes, I´m positive!"
 
b

Svo sendi Baldur mér smá efnafræðikennslu

Verðvísitalan

 
Ég sé að Krónan undirbýr sig fyrir lækkanir á matvælaverði með því að hækka verðið tímanlega.
Ég reikna út mína eigin verðvísitölu, vörukarfan samanstendur af Síríus Konsum 300gr. Núna kostar pakkinn 299kr. en hann hefur verið vel undir 300kr allt undanfarið ár.
Eigendur matvælaverslana eru greinilega á sömu skoðun og ég. Við erum of rík. Þeir eru að gera eitthvað í málunum.
 
b
2月9日

Verg landsframleiðsla og bílviðgerðir

 
Þjóðhagfræðiprófið var fljótlegt. Sem betur fer því ég þurfti að sækja bílinn minn á verkstæði fyrir kl 5
 
Niðurstöður dagsins í tölum:
Þjóðhagfræði ca.   9
Bílviðgerð      ca. 83
=============
Samtals         ca. 92
b
 
 
 
2月8日

Enska drepur !

 
Sif sagði mér að ..
 
Japanir borða mjög lítið af fitu og fá færri hjartaáföll en Bretar og Bandaríkjamenn.
Frakkar borða mikið af fitu og fá líka færri hjartaáföll en Bretar og Bandaríkjamenn.
Japanir drekka mjög lítið af rauðvíni og fá færri hjartaáföll en Bretar og Bandaríkjamenn.
Frakkar drekka óhóflega af rauðvíni og fá líka færri hjartaáföll en Bretar og Bandaríkjamenn.
 
Niðurstaða:
Borðaðu og drekktu það sem þú vilt.     En ekki tala ensku ! 
2月5日

Procrastination

 
Frestunarárátta. Ég talaði um hana við Baldur í gær. Ég sé stundum í honum þetta sem þvælist oft fyrir fótunum á mér. Fresta mikilvægum hlutum fram í rauðan dauðan. Mér finnst ég vera að athuga hversu langt er hægt að ganga án þess að heimurinn farist. Í fyrsta sinn sem ég hundsaði að gera það sem ég "hefði átt" að vera að gera, þá las ég ekki undir landafræðipróf í barnaskóla, þá var ég að ögra þeirri klisju að ég fengi alltaf (sjálfkrafa) góðar einkunnir. En auðvitað fékk ég góðar einkunnir vegna þess að ég lærði allt námsefnið utanað fyrir próf.
Þetta er ekki flókið.
 
b