| Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas | Ayuda |
|
24 febrero VeðurfarÆ, ég er ekki frá því að ég finni fyrir heilsufarslegum mótbyr þegar veturinn ætlar að vera svona langur og vindasamur. Nú þyrfti ég að komast á skíði og basla útivið í einn dag.. en heimalærdómurinn kallar.
Stelpan er milli markstanganna í Mosfellsbæ. Núna er það handbolti. Ég get ekki hangið í íþróttahúsi allar helgar. Í mínu ungdæmi voru foreldrar ekkert að skipta sér af íþróttaiðkun krakkanna.
b 19 febrero HeimsbókmenntirnarBaldur er að lesa Njálu á netinu - frá Japan
og uppeldinu á að heita lokið
b 17 febrero TED talks - um menntun barnaÞessir TED fyrirlestrar eru stórkostlegir ! Klárasta fólkið í heiminum í minni tölvu.
Hér talar Sir Ken Robinson um menntun barna: Do schools kill creativity? Hann segir meðal annars "If you are not prepared to be wrong, you will not come up with anything original" En það er bara ofurlítið brot af öllu því frábæra sem hann segir. Snjall og skemmtilegur. Njótið.
b 15 febrero HlýðniKrakkar mínir, verið ekki svona stillt !
"Að framkalla borgaralega meðalhegðun, svæfa fólk og gera það hæft til að þola biðraðir í bönkum, kirkjuathafnir og langar fundasetur er glæpur gegn mannkyninu."
Guðm. Oddur í Viðskiptablaðinu í dag 13 febrero MyndirSvo er hann Baldur minn ekki bara að syngja í Karaoke þarna í Japan. Hann er líka eitthvað að teikna. Þeir Andri klára kannski þessa bók að lokum. GengiðÉg tók mig til og lagði pening inná gjaldeyrisreikninga. Mér sýnist alveg ljóst að Seðlabankinn er ekki að stýra peningamálum með það að markmiði að hafa hemil á verðbólgunni. Það er þó yfirlýst stefna. Ég held að Seðlabankinn sé að stilla peningamarkaðinn af m.v. gengi krónunnar.
Hmm
b 12 febrero ForbrydelsenMöl ?Ég er búin að velja mér forsetaframbjóðanda í USA. Mikki Möl
Ef ekki væri fyrir hann, þá myndi ég velja Hillary eða Barak. Þau fá jafnmörg stig. En ég myndi kjósa Hillary. Ég heyrði viðtal við hana á BBC og heillaðist.
Þetta próf er ekki svo vitlaust. Huckabee fékk einungis 5 stig frá mér, enda finnst mér hann fáviti.. eða eitthvað með skárra orðalagi en sömu merkingu.
SjónvarpsefniðEydís er að gera úttekt á því hversu stór hluti af sjónvarpsútsendingunni er "ekki sjónvarpsefni"
Baldur says:
en í japan eru auglýsingarnar betri en efnið b 07 febrero Baldur er á lífi
Að öðru leiti hefur dagurinn verið sjálfhverfur. Ég horfði á fjar-kennslu vídeó með sjálfri mér. Hringdi í Ferðafélag Íslands og hlustaði á mína rödd á símsvaranum svo fletti ég sjálfri mér upp á innranetinu í vinnunni.
Ég versna ekki úr þessu
b 04 febrero Euro-2008Ég spái því að Eistar taki þetta í ár :] http://www.youtube.com/watch?v=I-745smdbhU&feature=related
b 03 febrero Krabbó klíkanÉg borðaði í gær með stelpunum sem ég vann með í Krabbó. Ég fékk þá bestu súkkulaðiköku sem ég hefá ævinni bragðað og komst að því að klárar og skemmtilegar konur verða því fyndnari sem þær eru fleiri saman. umm þessi súkkulaðikaka verður í fermingarveislunni hennar Eydísar (30.mars)
Ég má ekki tala um fiskréttinn, hann var svo mikið leyndó. Ahhh ég hlakka strax til að hitta þær aftur. b 02 febrero SkúringarHafragrautur, kaffi og ananas
Ég er búin að velja mér mastersverkefni. "Aðferðir við villuleit í markaðri málheild". Hrafn Loftsson verður leiðbeinandi minn. Þetta er ekki ólíkt því sem ég geri gjarna í vinnunni. Þar heitir það "Data Quality" en ég kalla það skúringar.
Ég las fyrstu greinina í fyrradag og mig LANGAR SVO að prófa að forrita þá aðferð sem lýst er þar. Langar svo .. langar svo .. mér finnst ég gæti klárað það um helgina og ég er alveg sannfærð um að hún mun skila verulegum árangri. En ég þarf að vinna að RushHour verkefninu hjá Yngva. Forrita í C++, ég kann ekki C++, þetta verður erfið helgi (En ef ég stelst til að forrita villuleitina í perl, ég á hluta af kóðanum sem ég þarf að nota .. og segi bara engum frá því)
Ég er ekkert skárri en krakkarnir mínir, geri bara það sem mig langar til í stað þess sem ég "ætti" að gera. Oh well, lífið er gott og hafragrauturinn líka. b |
||||||||||||||||||||||
|
|