Birna 的个人资料frú birna照片日志列表 工具 帮助
3月31日

Þversnið þjóðarinnar

 
Í dag munu Hafnfirðingar kjósa um það hvor virkjað verður á Suðurlandi og þenslunni viðhaldið okkur öllum til blessunar.
Nú er búið að skapa óróa og hatursfullar fylkingar í Hafnafirði. Hvaða bæjarfélagi eigum við að rústa næst með því að láta það kjósa? Sem ég maulaði morgunmatinn og naut þess að finna kaffið streyma um æðarnar sá ég jákvæðu hliðarnar á þessu fyrirkomulagi. Hei! Hversvegna ekki að nota alltaf bara Hafnfirðinga til að kjósa um öll mál? Hafnfirðingar eru ágætt þversnið þjóðarinnar. Þeir eru nógu margir til að vera tölfræðilega marktækt úrtak. Þeir eru næstum því borgarbúar, en samt sveitó.
ISK/Evra? Hvar á að bora á Austfjörðum? ESB? Hálendisvegur? Kynjakvótar? Hvar á að virkja? Vændi? Hvalveiðar?  Já, og alþingiskosningarnar. Þá yrði vægi atkvæða ekki lengur issjú.
Hugsið ykkur sparnaðinn! Örfáir kjörstaðir í stað þess að bögga alla þjóðina á því að velja sér fylkingu. Talning atkvæða tæki enga stund.
Þetta væri lýðræði sem væri auðvelt í framkvæmd.
 
b
 
Hvernig voru ákvarðanir um virkjanir teknar áður en Hafnfirðingar voru spurðir?
 
3月30日

Föstudagsgetrunin

 
Hvað er langt til páska  ?
 
ok, ok, ok, mig langar í bjór þegar ég er búin með þetta endemis verkefni
 

Classical Growth Theory

Klassísku hagfræðingarnir (the Malthusians) töldu tengsl á milli tækniframfara og fólksfjölgunar. Hugmyndin byggir í raun á þeirri hugsun að skortur haldi mannfjölda í skefjum. Þeir töldu að bættur hagur í kjölfar tækniframfara yrði aðeins tímabundinn, því þegar kjörin eru orðin betri en svo að fólk rétt skrimti þá muni það valda aukinni fólksfjölgun þar til framleiðni á mann y, er aftur orðin sú sama og áður og aðeins fleira fólk rétt skrimtir áfram. Mannfjöldi helst í hendur við framleiðni.
 
Þessi kenning gæti átt við þar sem efnahagurinn er svo knappur að hann takmarkar frjósemi og lífslíkur eins og algengt er í dýraríkinu eða örsnauðum samfélögum þar sem barnadauði er mikill og lífið einkennist af brauðstriti. Aukið fæðuframboð eykur viðkomu stofnsins. Eins og í fiskeldi.

Þetta á ekki við í vestrænum þjóðfélögum þar sem barnadauði er lítill sem enginn og einungis brot af tekjum fólks fer til nauðþurfta. Fólk hefur meiri frítíma og val um að nýta hann í fleira en koma börnum á legg t.d. horfa á sjónvarp. Þar að auki valda háar tekjur miklum fórnarkostnað þess að eiga börn (töpuð laun, hægari starfsframi og stofusófi útataður í skyri) sem veldur því að (aðallega) konur hika við að eiga (mörg) börn.
 
Hvernig getur eitthvað svona heimskulegt kallast Classical, kenningin ætti einfaldlega að heita Old Growth Theory, til að raðast rétt með New Growth Theory.
 
b
 
Hey! Hvaða bull er þetta í þér stelpa!  (ekki vera hissa, ég tala oft við sjálfa mig)
Hvar er rúm fyrir hagvöxt ef ekki einmitt í þeim þjóðfélögum þar sem aukið fæðuframboð myndi bæta heilsuna en ekki öfugt
 

hýri Hafnarfjörður

 
Hafnfirðingar kjósa á morgun. Hvaða pæling er það að skipulagsmál Hafnfirðinga stjórni því hvort það verður virkjað á Suðurlandi? En hugsið ykkur, áður en það kom uppúr dúrnum að Hafnfirðingar ættu að kjósa um skipulagstillögurnar þá stóð til að leggja þær fram ("on display" eins og í the Hitchikers Guide to the Galaxy) og bíða eftir mótmælum. Hver ræður því hvort er virkjað á Suðurlandi? Alcan? Rannveig Rist? Og hverjir verja landið? Örfáir bændur?  Mér finnst ákvarðanatakan öll hin undarlegasta.
Ég er að lesa þjóðhagfræði og m.a. um peningamálastjórnun og spyr, hversvegna liggur svona mikið á að viðhalda þenslunni? Hversvegna þarf að fara útí enn meiri framkvæmdir sem auka þensluna, þrýsta upp verðbólgunni og viðhalda þessu fáránlega vaxtastigi.
Hver borgar ef Hafnfirðingar vilja virkja? Ég !  og kannski einhverjir fleiri
 
b

Meistarinn

Kona dagsins er Ólöf Ýrr Atladóttir fyrrum bekkjarsystir mín og sambýliskona á heimavist MA.
hún sigraði Erling Sigurðarson íslenskukennarann okkar í Meistaranum í gær.
Ólöf hefur alltaf farið sínar eigin leiðir. Til hamingju stelpa !
 
b
3月29日

Enni

 
Unglingar geta verið svo uppteknir af því hvernig þeir koma fyrir. Mér finnst það ganga of langt að kalla sig Enni bara til að aðrir fatti ekki að maður sé hnakki
 
b
3月28日

Síðasti dæmatíminn !

 
Ég kenndi minn síðasta dæmatíma í strjálli stærðfræði í morgun - púff!
Við fórum yfir allt prófið frá í fyrra. 3ja tíma próf á 2ur tímum með útskýringum. Röddin er búin (þessvegna skrifa ég núna (raddlaus ergo skrif (ég kann ekki latínu))). Spurning hver lærði mest, ég eða einhver nemendanna. Ég sé að ég slapp vel, mjög vel, frá kennslunni á fyrri önninni. 
 
Núna helga ég mig þjóðhagfræðinni fram að verkefnaskilum á föstudaginn og reyni svo að ljúga mig inná Yngva Bj. með Informed Search Methods og vinn í því um páskana. . .  disco ergo sum.
Já, og finna mér einhverja vinnu til að tapa ekki holdum.
 
b
3月27日

Tilkynning

 
Köld eru kvenna ráð
- kvennaráð knattspyrnudeildar Fram
3月25日

föstudagsgetrun - lausn

Tveir höfðu getraunina rétta, súpernördin Baldur og Yngvi. Auðvitað var þetta alltof létt með "mostly harmless" efst á síðunni.

Maðurinn er enginn annar en "the fromer president of the Galaxy",

"the best Bang since the Big One" ZAPHOD BEEBLEBROX

einn auka bjór var veittur fyrir svarið "Birna Guðmundsdóttir"

 
b
3月23日

þjóðhagfræðipróf

Jæja, ætli ég slái ekki á 8 í þjóðhagfræðiprófinu
þá þarf ég bara að drekka 2 bjóra til að fá samtals 10
 
þið þarna sem ég skulda bjór.
Hvað með Q-bar, hann er flottur og streit frendlí, anyone ?
það er eftirspurn eftir Geysi bistro-bar, reyklaus, lampar ..
 
b

Föstudagsgrínið

er í boði Baggalúts og Erlu þar sem ég er að lesa undir próf í Þjóðhagfræði og má ekkert vera að því að huxa sjálf.
 
úr viðtali við Dr. Kristján Bergdísarson hóru í tilefni þess að vændi hefur verið lögleitt á Íslandi:
Dr. Kristján er þó ánægðastur með það að bannað er með lögum að þriðji aðili hagnist á vændinu. „Það þýðir jú væntanlega að maður þarf ekki að borga skatt af þessu.“
Föstudagsgetraunin:
 
Hverjum er lýst svona:  
clever, imaginative, irresponsible, untrustworthy, extrovert,
nothing you couldn't have guessed
 
3月22日

módelstörfin

 
Nú á að dreifa kynningarpésa um tölvudeildina í HR í framhaldsskólana. Með mynd af mér. Ég er bara skelkuð. En (hohoho) ég væri til í að sjá svipinn á Baldri þegar bæklingurinn kemur í skólann hans, með mynd af mömmu sinni :] Ég vorkenni honum smá, aumingjans gelgjunni.
Spurning hvort ég geti fengið skólagjöldin felld niður fyrir módelstörfin. Efnahagsreikningurinn er á núlli.
 
b
3月21日

Naut

 
Stjörnuspáin í Blaðinu er mitt leiðarljós:
 
Þér finnst þú vera kynþokkafull, örugg og við stjórnvölinn. Það er því ekki furða að allt gangi upp hjá þér þessa dagana. Njóttu þessarar tilfinningar og dreifðu gleðinni. Þú ert á toppnum núna, einmitt þar sem þú átt heima!  YES!
3月20日

Vertu í vinningsliðinu

Það er ríkt í fólki að vilja falla í kramið og vera vinsælt og forðast eineltispúkann, eins og þetta dæmi úr raunveruleikanum sýnir:

Kennari spurði nemanda sinn, hvað heitir þú?
Mohammed Ben Ahmed, svaraði sá stutti.
Þú ert núna í Frakklandi og hér eru engir Mohammed, sagði kennarinn. Frá og með þessum degi skalt þú heita Jean-Marc Pignat.
Þegar drengurinn kom heim segir móðir hans undan blæjunni, hvar hefurðu verið Mohammed?
Ég heiti ekki lengur Mohammed, nú er ég í Frakklandi og heiti Jean-Marc Pignat.
Móðir hans æpir yfir sig, löðrungar drenginn og kallar á föður hans.
Þegar faðirinn hafði fengið útskýringu á  málinu varð hann einnig fokvondur og löðrungaði drenginn.
Daginn eftir þegar sá stutti mætir í skólann komst kennarinn ekki  hjá því að sjá að hann hafði greinilega verið sleginn utanundir.
Hvað kom fyrir þig Jean-Marc, spyr kennarinn forviða.
Drengurinn svarar að bragði, jú jú, ég hafði nú bara verið Frakki í tvo tíma þegar tveir arabar réðust á mig.....
 
b
3月19日

skattur.is

 
Hversvegna lætur maður alltaf eins og það sé eitthvert mál að telja fram?
Það er ekki eins og fjármagnstekjuskatturinn sé að flækja útreikningana.
Þetta tók ca 20 mín.   Congatulations are in order !
 
b

Tuð-fé

 
Stundum get ég orðið dauðþreytt á að hlusta á tuðið í sjálfri mér
þá verð ég fegin þegar aðrir segja það sem ég nenni ekki að segja sjálf.
 
takk

Sjáfsþróun

 
áj vill meina að það geti verið ýmsar ástæður fyrir því að nýyrði séu ekki heppileg.
 
b
 

Ókeypis myndlist

 
Nú er ókeypis inná Listasafn Íslands (í boði teinóttra held ég)
Akkúrat núna er verið að sýna Jón Engilberts á 1.hæð (þar er m.a. hægt að skoða klámmyndir og vera jafnframt menningarleg). Margar skemmtilegar myndir, flottir litir og mikið líf. Áherslan er á mannlífið og fyrir plebba eins og mig er þróun listamansins greinileg. Er það alltaf svona? að myndlistafólk fer með tímanum lengra frá myndefninu og útí að skálda með litum og formum? Eða er ég alltaf að skoða myndir frá sama tímabili?
 
Á 2.hæð er Jóhann Briem. Skrítnar myndir hans af fólki. Það er eins og það eigi ekki heima á myndfletinum. Mér finnst hann lang-flottastur þar sem hann notar stóra fleti með litum sem eru t.d. tún, og eina "persónu" eins og "liggjandi kálfur" og "stúlka í grasi".
Ég ætla að kíkja aftur og taka krakkana með (þetta er kosturinn við að sýningin sé ókeypis, þá get ég kíkt við í 10 mín á leiðinni úr búð)
 
Um síðustu helgi fór ég í Hafnarborg (í boði Bjarna beib)
Þar eru vatnslita- og olíumyndir eftir færeyskan gaur Zacharias Heinesen. Mjög góðar myndir (Hafnarborg klikkar ekki!) Sömu mótivin sí-endurtekin, hann situr örugglega með kaffibollann og málar útum eldhúsgluggann :]
Ég var sérstaklega hrifin af vatnslitamyndunum. Þær eru kraftmiklar og flottar. Ég er eiginlega aldrei hrifin af vatnslitamyndum.
Margar eru "köflóttar". Hann er líka á leiðinni yfir í liti og fleti
3月18日

Eldur !

 
Ég segi af mér sem móðir. Baldur kveikti í að gamni sínu.
Svo heldur hann að það sé einhver afsökun að ég hafi gert það á undan.
 
b

Skref fyrir skref

 
Þó ég geri minnst annað en að þusa, þá er þetta kannski allt í áttina ..
Svona kemur þetta, skref fyrir skref, stundum afturábak en oftast áfram. (ég var að klára kaffibollann, jákvæðnin streymir um æðarnar) 
 
b