Profilo di Birnafrú birnaFotoBlogElenchi Strumenti Guida
27 marzo

Peysan !

 Ásdís Birgisdóttir textílhönnuður sér um handavinnuþátt Húsfreyjunnar
Hún hannaði peysu sem birtist í júníhefti Húsfreyjunnar í fyrra sem kallaðist "glæpsamlega snotur peysa" og er í dúr við Forbrydelsen peysuna, sem aftur er í dúr við peysur sem voru vinsælar á áttunda áratugnum.
Peysan er úr llama ull en auðvelt að prjóna úr t.d. plötulopa. Blaðið er hægt að nálgast á skrifstofu Kvenfélagasambandsins.

Forbrydelsen peysan er eftir færeyskt hönnunarteymi sem heitir Gudrun&Gudrun sem eru einmitt núna þátttakendur á hönnunardögum og sýningu á norrænni fatahönnun í Norræna húsinu.

Ég hleyp niður í Norræna hús !

b

26 marzo

Stór vinnustaður

 

GeoFriend á Facebook segir:

Pornwadee is one of my farthest friends at 9,945 km

En hún situr við hliðina á mér  :]

b

25 marzo

Laugavegurinn

 
Ásta ætlar að hlaupa Laugaveginn í sumar. Ég horfi bara á vídeóin og læt öfundina nægja
 
 
 
b
16 marzo

Lífið er ljóð

Eydís er skáldið á mínu heimili, hún vaknar með ljóð í munni á hverjum degi

Afhverju vaktir þú mig ekki!

Eru hreinir sokkar í þinni skúffu ?

Ég tek með mér banana, bless!

b

Framsetningin

 

Vei, hver samdi þessa frétt:  Stjórnlagaþing mun kosta það sama og verið er að skera niður á Landsspítalanum
af hverju sagði hann ekki   :  það kostar sama og afskriftir Moggans ?

b

09 marzo

Hvernig gengur?

    Það sem mig dauðlangar að vita er :  <sent á seðlabanka og viðskiptaráðuneyti>

    1. Hvað skuldum við mikið í krónubréfum og hvenær eru gjalddagar? (er þetta ekki til í súluriti hjá Seðlabanka eða hagstofu? )
    2. Hvernig er stefnt á að losna við krónubréfin og hvenær?
    3. Hvað er Seðlabankinn að eyða miklum gjaldeyri í að halda uppi genginu?
    4. Hversvegna erum við að "halda uppi" genginu??

    kv. Birna

    ---------------------------

    Stefán Jóhann Stefánsson hringdi í mig úr Seðlabankanum og sagði eftirfarandi: (vonandi rétt eftir haft)

    1. Upplýsingar um krónubréfin og gjalddaga þeirra er að finna á bond.is og í peningamálum Seðlabankans. Ég spurði hvort útistandandi væru um 200 ma, og hann sagði að það væri ekki fjarri lagi, en taldi þó að það væri nokkru lægra. < ég á eftir að fara inná bond.is og skoða >
    2. Hann kannaðist ekki við að nein opinber stefna væri um að losna við krónubréfin. Þó svo það hefði vissulega verið í umræðunni.
    3. Hann sagði Seðlabankann hafa eytt litlu í að halda uppi genginu
    4. Og tilgangurinn væri að halda verðbólgunni niðri.

Ég er sátt við greið svör, en sakna þess að fá á tilfinninguna að markvissar aðgerðir séu í gangi. Það er bara verið að beita klassískum aðferðum eftir bókinni, en þær hafa brugðist hingað til og einhver sagði að það væri búið að eyða 140 millj af AGS láninu. það eru soldið miklir peningar.
Í morgunkorni Íslandsbanka 6.feb kom fram að í um þriðjungi gjaldeyrisviðskipta væri Seðlabankinn að kaupa krónur (og sóa gjaldeyri!)

SÍ segir: - ég ætla að ýta þessu á sérfræðingana okkar og reyna að fá þessar upplýsingar í aðeins ítarlegra formi en ég nefndi við þig í símanum - til að setja á vefinn

    Kv. Birna

06 marzo

Áfram KR

 
um daginn var Sjáfstæðismaður í kaffi hjá mér
 
hann var mjög ósáttur við að líklega yrði Bjarni Ben formaður, hann vill Þorgerði
hann var mjög ósáttur við klíkuveldið innan flokksins
hann var mjög ósáttur við frjálshyggjuna
hann var mjög ósáttur við hvernig var raðað í ráðherrastólana
hann var mjög ósáttur við framtaksleysi Geirs
hann var mjög ósáttur við Davíð í Seðlabankanum og að hann skyldi ekki vera rekinn

en ég held hann hafi ekki einusinni hugleitt að   KJÓSA  EKKI   Sjálfstæðisflokkinn

b

05 marzo

Betri stjörnuspá

 

NautNaut: Þú leggur þig allan fram í starfi og er sama hvað þú tekur þér fyrir hendur það vekur almenna hrifningu yfirmanna þinna.

b

03 marzo

Stjörnuspá


NautNaut: Nú er rétti tíminn til þess að þú komir hugmyndum þínum á framfæri við starfsfélaga þína og yfirmenn. Stundum verður maður að leggja eitthvað á sig til að vináttan fái notið sín.

.. ætti kannski að skella mér í vinnuna

b