Profilo di Birnafrú birnaFotoBlogElenchi Strumenti Guida
30 aprile

kvöldfréttir

 
Bjarni beib er hættur sem bankastjóri Glitnis. Hann hefur þá kannski tíma til að borða með skólafélögunum. Lárus Welding tók við sætinu. Hann er líka góður strákur.
 
<ég er að hlusta á fréttirnar>
".. talan hleypur á örfáum tugum"   hahaha, Impregilo er fyndið
 
Verið að loka endurhæfingardeild geðsjúkra! Það bara getur ekki borgað sig fyrir samfélagið!
Það hljóta að vera til betri leiðir, fleiri leiðir. Væri ekki hægt að fá "atvinnulífið" með í endurhæfinguna?
Hvað er ég að tuða, veit ekkert hvernig þessu er hagað. En væri ekki hægt að "borga með" fötluðum í vinnu? Það gæti hugsanlega létt álaginu á endurhæfingarapparöt og skapað meiri sveigjanleika í atvinnulífinu.
 
b
29 aprile

ellefu mínútur

 
skv. Ástu tekur það ellefu mínútur að skúra eldhúsgólfið
 
b
28 aprile

Samábyrgð og framsókn

 
Mér finnst mikilvægast að halda fast við hugsjónirnar vinna vel saman að betra þjóðfélagi
Stóru orðin eru samábyrgð og framsókn  (sem á tæplega við um Framsókn.. )
 
Mér finnst mikilvægast að fá til forystu fólk sem ég treysti til að stefna að betra samfélagi. Ég er t.d. hrifin af Jónínu Bjartmarz í Framsókn. en mér finnst næstum flestir aðrir í flokknum hugsa meira um að moka undir sinn eigin rass en bæta samfélagið. Halda völdum sama hvaða á dynur. Neita að horfast í augu við að breytinga er þörf í landbúnaðarkerfinu. Gleyma samábyrgðinni. Segja eitthvað hljómfagurt í sjónvarpinu án þess að hafa ástríðu til framfara. Láta hvern sem er borga sig í gegnum kosningabaráttuna á síðustu stundu. Hvar eru heilindin? Þetta er ekki fallið til virðingar. Ég er svo sem ekkert endilega að tala um Framsóknarflokkinn. Framsóknarfólk er í öllum flokkum.
 
Síðast í gær var Hjálmar Árnason ráðinn sem skólastjóri yfir nýja háskólabæinn við Keflavík. Mér finnst það frábær hugmynd að nýta "Völlinn" sem háskólasamfélag. En hversvegna að skemma góða hugmynd með því að ráða nóboddý til að stjórna? Við eigum fullt af frábæru fólki. Nú síðast var t.d. Svafa Grönfelt ráðin sem rektor Háskólans í Reykjavík og hún er endurmeta alla stefnu skólans og styrkja hann á allan hátt. Hann var samt vel rekinn fyrir! Lengi má gott bæta. Háskólinn í Reykjavík rokkar feitt.

Ég er mótfallin því að menntamál séu mæld í "fjárveitingum". Það skiptir meira máli hversu stórt hlutfall prófessoranna er sofandi í vinnunni. Kannski þarf að reka alla kennarana á 7 ára fresti þeim til upplyftingar. Metnaður og framkvæmdasemi. Árangur!
Örfáir nemendur undir stjórn frábærs kennara í HR eru heimsmeistarar í leit í myndagagnagrunnum. Þeir eru nú að sækja um einkaleyfi á sinni aðferð og eru að útvíkka hana til að leita í vídeóum. Þetta er árangur.
Sama á við um Grunnskólana. Ég vil að sérhver skóli fái frelsi til að leita betri leiða til að mennta sína nemendur og að foreldrar fái ávísun á nám í 1 ár í senn sem þeir ráða hvar þeir innleysa. Þá væri komin einhverskonar samkeppni milli skólanna og umræða um markmið og árangur yrði almennari.
 
Það er ekki nóg að pólitíkusar hendi milljón og milljón í HÍ því þeir hafi frétt að menntun skili sér í mannauði. Þeir, nei ég meina ÞAU, muna ekki að það eru fleiri háskólar á landinu. Það skiptir heldur engu hvort góð verk spretta úr háskólasamfélögunum eða annarsstaðar í samfélaginu. Allir sem vinna gott verk ættu að geta, án mikilla hindrana af hálfu hins opinbera, komið sinni hugmynd á koppinn. Ég er ekki farin að tala um að allir eigi að eiga aðgang að fjármagni. Bara að lágmarka hindranir. Konan sem stofnaði Kaffitár þurfti yfir hundrað leyfisbréf og uppákvittanir til að geta selt kaffisopa á Laugarveginum. Samt er hún ekki með vínveitingaleyfi! Þá hefðu uppákvittanirnar orðið enn fleiri. Svona reglugerðafargan virkar eins og sandur í samfélagsvélina.
 
Ég er að tala út og suður.. jæja, hvað um það, sæki mér annan kaffibolla
b
27 aprile

Jónína rokkar

 
Jónína svooo rokkar!  Ég myndi kjósa framsóknarflokkinn ef hann væri ennþá til (ok, kannski ekki alveg.. )
Ég skildi aldrei hversvegna hún varð ekki formaður flokksins.
Nú sitja þau uppi með enn einn fornmanninn.
 
b

blóðugt

 
Ég gær gaf ég blóð. Ég beiti öllum brögðum til að tapa mér. <365 000 carat>
Annars les ég, og hjóla (of þreytt til að hlaupa) og baka ..
 
24 aprile

Varnir á friðartímum

 
Nú er ég alveg hætt að skilja íslensku. þetta hlýtur að vera norska
 
b

abstemnious

 
Akkúrat þegar magrunarkappið hófst, sendi WordADay mér þetta orð:
 
abstemious (ab-STEE-mee-uhs) adjective
   Sparing, especially in matters of eating and drinking.
[From Latin abstemius, from ab- (from) + temetum (liquor).]
 
það hefur líka þann skemmtilega eiginleika að nota sérhvern sérhljóða bara einusinni
og þeir eru í stafrófsröð innan orðsins. Takk fyrir það.
 
b
23 aprile

Maraþon afmæli

 
Í dag er ár síðan ég hljóp maraþon í London og ég er búin að hvíla mig nóg.
Nú hefjast æfingar fyrir Berlínarmaraþon 30.sept 2007. Ég hef 160 daga til stefnu.
 
Ég er búin að setja upp Excel skjal (hvað annað) með línuriti sem sýnir fallþunga minn og nokkurra vina minna sem létu etja sér í megrunarkapp. Ég brölti ekki heilt maraþon vel rúmlega sjötíu kg. 
Beggó, elsku gullið er 2751 oz. Í aðalvinning eru 5 kg af rjómaís og verðlaunabikarinn Sexy bastard
20 aprile

of witches and bitches

 
Ég var einu sinni í klúbbi sem hét the Witches and the Bitches. Eins og gefur að skilja voru fundirnir stormasamir, fyndnir og eitraðir eins og raunveruleikaþættir, enda var þetta raunveruleikinn. Allar stelpurnar vildu vera nornir þ.a. ég tók að mér að vera tík og stóð mig ágætlega.
Hópurinn er varla til lengur sem slíkur, en þegar ég sé eldingu á himni hugsa ég til nornanna.
 
sr. Hjálmar Jónsson hitti okkur á Jómfrúnni og ávarpaði með þessari stöku
Fegurðin getur hugan hresst
horfi ég eins og glópur
Aldrei hefur áður sést
annar eins nornahópur
svo kyssti hann okkar allar bless og í þann mund hringdi biskupinn ..
 
b

verum í bandi

 
Það er tómt mál að tala um atvinnu án staðsetningar ef netsamband er ekki í lagi allstaðar á landinu.
Hugsa sér ef maður byggi á Blönduósi og gæti ekki skilað af sér grein, forriti, gögnum, skýrslu .. á réttum tíma því netið væri niðri. Við þurfum ADSL í öll hús. Eða kæmist ekki á google eða wikipedia eða á greinasöfn til að viða að sér fróðleik. Við þurfum nýja snúru til landsins. Þetta er bara ekki nóg að hafa þessi samskipti oftast í lagi. Ég er sveitaplebbi inn við beinið, en gæti ekki hugsað mér að flytja þangað sem ég hefði ekki hraðvirkt og öruggt netsamband. Við hvað ætti ég annars að vinna ? Álver ?
 
Sætu stjórnmálaskörungarnir okkar hugsa um atvinnu og byggðamál í fjölda Vörubíla.
Virkjanir.. Vegir .. Vikurflutningar
 
b
19 aprile

Gleðilegt sumar

 
Handboltamót, wöfflubakstur, stórbingó Fram og grill í sólinni.
Vel heppnaður fjölskyldudagur í Grafarholti er okkar hagvöxtur
Sko! ég er líka farin að rugla saman hagvexti og góðu samfélagi.
 
Vetur og sumar frusu saman um allt land, það veit á góða tíð.
Njótið sumarsins elsku hjartakrúttin, ég er farin með hvítvín á tónleika
 
b
18 aprile

Fertugsafmæli

 
Við Ásta ætlum að halda fertugsafmæli um helgina í tilefni þess að við erum báðar orðnar fertugar.  Boðskort verður sent til þeirra vina okkar sem eru orðnir fertugir og kannski einhverra sem verða það seinna.
 
b
17 aprile

dæmablöð

 
Ég er alveg að verða galin á að fara yfir dæmablöði í strjálli stærðfræði. Til að halda mér við efnið teikna ég upp í Excel hvernig gengur. Það tekur mig 7-69 mínútur að fara yfir hvert verkefni!
Nú er nóg komið! Ég fer með síðasta bunkann út og kasta honum niður tröppurnar. Þau blöð sem tolla í efstu tröppu fá 10 í einkunn. Svo opna ég hvítvínsflöskuna.  
 
b

naut

 
Ég kom við í Nóatúni, alltof sein með matinn og ætlaði að kaupa heitan mat... það var eitthvað lítið eftir í borðinu en ég benti á kjötbita og spurði: "Hvað er þetta?"
Strákurinn horfði á mig, þreyttur á þessum viðskiptavinum og svarði: "Naut"
"Hvernig naut?" spurði ég
Strákurinn horfði lengi vantrúaður á mig en svaraði að lokum: "Muuuuu!"
 
Við höfðum nautasnitsel í matinn :]
 
b(aula)

öryggi

 
ég legg til að við eflum öryggisgæslu, leyfum símhleranir til að fylgjast með sms-um og setjum vopnaða öryggisverði inní alla íslenska skóla til að koma í veg fyrir byssuglæpi.
 
ást og virðing
16 aprile

Snuð

 
Ertu óhress með eitthvað ? Bloggaðu um það!
Blogg var fundið upp til að þagga niður í lýðnum. Samsærið er allstaðar.  
 
Tuð-stuð-snuð ..  bloggaðu og þú þér finnst þú hafa gert eitthvað
Meðvitund og pólitískur rétttrúnaður . Tuði-tuði-tuð
Þú gerir ekkert af þér á meðan
 
ást og virðing
b
 

 
14 aprile

Í Ruslinu fyrir útivistina !

 
Pétur Elínarson rekstrarfulltrúi hjá borginni telur að konur vinni í ruslinu til að fá útivist og holla hreyfingu!
og þetta lendir á forsíðu Blaðsins í dag, þrátt fyrir að Didda (skáld) leiðrétti bullið, því auðvitað ráða konurnar sig í vinnu til að sjá fyrir sér og sínum.
 
b
12 aprile

Fjarvera

 
Sagt var um mann að hann hefði góða fjarveru.
 
b
11 aprile

þjóðhagfræði - check!

 
Jæja, þjóðhagfræðiprófinu lokið. Þetta var rosa stuð. 2 ritgerðaspurningar og ég teiknaði og skrifaði og skrifaði ( og skrifaði (og skrifaði)). Ég veit ekki alveg hvernig mér gekk að koma nýfenginni þekkingu á blaðið. Ég veit hvað ég skrifaði, en ekki hvað ég gleymdi að skrifa. Ég lenti í tímaþröng með síðasta atriðið varðandi Solow líkanið sem er tattóverað á heilabörkinn. En hvað um það, þetta sleppur. Skyldi ég geta fengið aðra undanþágu og tekið framhaldskúrsinn? Verð að fá mér de-caff til að ná mér niður
 
    Beta baun leggur til að Hafnfirðingar stofni Álfver og framleiði Álfpappír 
10 aprile

tips

 
Í Bandaríkjunum er þjórfé stór hluti launa þjónustufólks. Þessi laun sleppa undan tekjuskatti. Líklega er það að hluta til ástæða þess að rekstur veitingastaða er hagkvæmari þar en hér. Lægri tekjuskattur.
Er að lesa undir próf í hagfræði: Economic Welfare Comparisons
b