Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas Herramientas Ayuda

Blog


29 junio

Nákvæmlega !

Sumir segja að strætó sé rekinn með tapi.  Er ekki vegakerfið rekið með tapi líka ? Ríkið borgar vegina en bærinn borgar strætó.  Ef vegirnir væru verðlagðir rétt hefðu strandflutningar ekki lagst af.
 

Búin að kaupa íbúð

 
Jæja, nú á ég 2 íbúðir og 1 kall og var kallinn sýnu dýrastur.
Fyrir viku var ég ekkert að kaupa íbúð, en svona er lífið. Stressið hefur valdið því að ég léttist um 1,5 kg á 2 dögum. Ef ég kaupi 2 íbúðir á viku þá verð ég horfin 11.desember.
En núna er ég í ataraxiu - hugurinn eins og heiðavatn
ataraxia (at-uh-RAK-see-uh) also ataraxy, noun   
A state of freedom from disturbance of mind.
b
28 junio

Working 9-5

 
Það besta við að vinna 9-5 er að kl 5 er komið sumarfrí. Nú get ég lesið lesið bók í sólbaði eða farið á kaffihús án samviskubits. Ég gerði þetta auðvitað líka þegar ég var á skólabekk, en tók samviskubitið alltaf með. Núna er ég að lesa "Hundabókina" eins og hún er kölluð á þessu heimili. "The Curious Incident of the Dog in the Night-time". Ég á hana bæði á ensku og íslensku og les þær til skiptis. Bókin er um einhverfan strák sem leysir morðgátu. Kaflarnir eru númeraðir með prímtölum og í kafla 101 er einföld og góð útskýring á Monty Hall vandamálinu og hversvegna það borgar sig að skipta um dyr.
Kona tekur þátt í spurningaleik í sjónvarpi. Í þessum leik er hugmyndin sú að konan geti unnið bíl. Stjórnandi þáttarins sýnir konunni þrennar dyr. Hann segir að handan við einar dyrnar sé bíll en bak við hinar tvær séu geitur. Hann biður konuna að velja sér einar dyr. Konan velur dyr en þær eru ekki opnaðar. Síðan opnar stjórnandi þáttarins aðrar dyrnar sem konana valdi ekki og sýnir henni geit (því að hann veit hvað er á bak við allar dyrnar). Svo segir hann konunni að hún hafi enn tækifæri til að skipta um skoðun áður en dyrnar séu opnaðar og hún fái annað hvort geit eða bíl. Hvað ætti konan að gera?
Lífið er prímtala.  Við þurfum að gera annað tilboð í íbúðina. Nú verður það prímtala !
 
27 junio

Tilboð

 
Ég er í stresskasti - búin að bjóða í íbúð. Ég minnist þess ekki að hafa kippt mér uppvið íbúðarkaup áður.
 
b
26 junio

"Langar-í" veikin

 
Ég skoðaði íbúð í gær og er komin með langar-í veikina.  Kannski var ég ekki síst skotin í konunni sem er að selja (alvöru kella) og málverkunum hennar. Yngvi benti mér á að málverkin fylgja ekki með íbúðinni. Ohh damn!  Eydís er tilbúin til að flytja ca. 70metra. Íbúðin er innan þess radíuss. Núna er ég að reikna út greiðslubyrði af húsnæðislánum
Íbúðin mín er metin á 3x hærri upphæð en ég keypti hana á fyrir 10 árum og launin mín eru 3x hærri en þá. Þetta er ca 12% verðbólga á ári.
 
Ekkert bætir skapið meira en að eyða peningum, nema ef vera skyldi að eyða miklum peningum.
 
b
22 junio

Niðurstöður út Lotu II

 
  Ég vinn! Ég vinn! Ég vinn!

2,6% Birna
1,6% Ásta
1,0% Vala
0,4% Yngvi
0,4% Magga

b

21 junio

Skipulagsmál - já elskan

Kosningarnar í Hafnafirði snerust ekkert um skipulagsmál, heldur hvort það ætti að stækka álverið og ég held að flest allir sem kusu hafi verið á þeirri skoðun.
Þessir helv. kjósendur kusu bara ekki rétt þ.a. nú þarf að breyta skipulaginu til að búa til pláss fyrir Álverið.
Lýðræði - skrílræði

b

Vinnuskólinn

 
Í Fréttablaðinu í morgun var smá grein um krakka hjá Vinnuskóla Reykjavíkur sem saumuðu víkingaföt fyrir einhvern atburð. Voða sæt grein. Á myndinni mátti sjá:
Einn verkstjóra : strák
4 saumakonur : stelpur
Er það m.a. þarna sem krakkarnir læra hvernig vinnumarkaður á að virka ?
Mér finnst það lágmark að "Vinnuskólinn" taki frumkvæðið og kenni krökkunum að brjóstat útúr þessu mynstri. Mér finnst að vinnuskólinn ætti að vera með markvissar aðgerðir til þess að hópstjórar stýrist ekki bara af eigin fordómum og setji strákan óvart á sláttuorfin og stelpurnar í saumaskapinn.
Hvað finnst þér?
 
með sumarkveðju
frú birna
20 junio

Til hamingju !

 
Ég fór í BootCamp í morgun - Til hamingju 
 
Vala er 25 ára í dag - Til hamingju 
 
Hjalti Trostan bróður sonur minn er 2ja ára -  Til hamingju
 
b
19 junio

Ich bin ein Berliner

 
Kræst! ég var að fatta að það eru rétt um 3 mánuðir fram að Berlínar maraþoninu ..  Ég er spægipylsa
 
Til hamingju með daginn elskurnar
 
b
18 junio

BootCamp 6:15

 
Æfingarnar ganga vel. Ég vaknaði eld-snemma og skrópaði á BootCamp æfingu.
Ég ætla að mæta á miðvikudaginn. Þá verð ég búin að safna kjarki.
Ég reyndi að drekka í mig kjark um helgina. Það dugði ekki.
 
b
15 junio

I walk the Valley of Humility

 

Þessa skáldlega setning var í "word a day" póstinum mínum. Mér fannst hún flott og notaði hana sam msn kvót. Hún er ekki lýsandi fyrir mig. Það er lítil hætta á að ég verði hógvær. Ég er að norðan ..

b

14 junio

Fyrir neðan allar hellur !

 
þetta gengur ekki!  Ég get ekkert bloggað fyrir vinnunni.
 

Langar í

 
Geðveik sólgleraugu
 

Web Page Hit Counter
web site counters
12 junio

Nafngiftir

 
Sum fyrirtæki heita góðum nöfnum. Eins og hellulagningafyrirtæki sem heitir "Stéttafélagið"
 
Berserkir finnst mér líka gott nafn og lýsandi þar sem þeir eru mest í að brjóta niður veggi.
 
Faggarðar virkar ekki alveg eins vel. Hvorki ég né Baldur getum lesið þetta nafn rétt.
 
b

Fjallganga dagsins

 
Nú er meiningin að gera eitthvað alvöru á hverjum degi. Búin að fara nokkrum sinnum á Esjuna og hlaupa hér og þar.
Í kvöld ætlaði ég á Esjuna, en þegar ég loksins dróst frá sjónvarpsskjánum og David Attenborough þá skein sólin ekki lengur á gönguleiðina upp Esjuna þ.a. ég týmdi (nennti) ekki að fara þangað. Þess í stað ókum við uppað Lágafellskirkju og gengum á Lágafell :] það var einmitt nógu lágt fyrir stuðið og stemminguna. Mér hefur alltaf þótt kirkjan falleg og þarna skein kvöldsólin á mjúkan mosann og heimaríkan Tjald. Hér og þar gægðust Þúfusteinbrjótur, Músareyra og Lambagras uppúr mosanum. (ég var að fletta í blómabók)
Það er svo gott að liggja í mjúkum mosa, mæna uppí himininn og brosa,
hugsa bara þetta; rosa, rosa, rosalega er gott að liggja í mosa. 
                      Þórarinn Eldjárn,  hver annar
En kannast hlustendur við vísu í þessum dúr eftir sama höfund:
það er svo vont að liggja á köldum klaka .....
                      .. svaka, svaka, svakalega er vont að liggja á klaka  ??
Nú er nóg komið. Ég þarf að fara snemma í háttinn til að geta farið út að hlaupa í fyrramálið og bæta fyrir leti kvöldsins. Annars kemst ég aldrei þetta blessaða maraþon í haust.
 
b
 
Já, og stelpurnar unnu Gróttu 3-1 í dag .. þær eru efstar í riðlinum <sjá KSÍ síðuna>   
11 junio

Í nýju vinnunni

 
Ég gekk of langt í dag.
 
Við sitjum við borðaraðir eins og á bókasafni og ég er ekki alveg búin að læra að rata á minn bás.
 
b
07 junio

Sellu-súpa

 
Ég er með Sellu-fund í kvöld. Búin að bjóða tölvustelpum í mat
 
  •  frönsk lauksúpa
  •  franskbrauð
  •  franskt hvítvín
  •  frönsk súkkulaðikaka
og svo tölum við bara frönsku..    þetta verður þögult
 
b
 
 
05 junio

8-1 sigur og mótin í sumar

Skýrsla frá soccer mum
 
4.flokkur kvenna hjá Fram sigraði Ægi-KFR rétt áðan 8-1 í fyrsta leik á Íslandsmeistaramóti sumarsins
Markaskorarar:
Áslaug 3
Elva    3
Hafdís 1
Loubna 1
Auk Íslandsmeistara mótsins fara stelpurnar líklegast á Símamótið í Smáranum og á pæjumótið á Siglufirði í byrjun ágúst. Foreldrafundur í næstu viku.
 
frú Birna

YES !

 
Allt að gerast! Loksins er verið að taka á einokunar tilburðum MS á mjólkurvörumarkaði.
Tími Framsóknarflokksins og Kaupfélaganna er liðinn.  Ég get ekki annað en vonað að fyrirtæki eins og Mjólka nái fótfestur. Fyrirtæki sem hafa kjark til að berjast við "kerfið".
Ég fór á myndina Das Leben der Anderen sem er um persónunjósnir Stasi og hvernig fólk var kúgað til að jánka "réttum" viðhorfum og skoðunum. Alls ekki að ógna valdhöfum. Einungis þeir sem voru innundir fengu stöðu.
Myndin minnti mig óþægilega á ýmsar aðgerðir sem hafa verið gerðar hér á Íslandi. Hugtakið "bláa höndin" er ekki til útaf engu. Fólk missti vinnuna ef það skrifaði smásögu sem hljómaði óþægilega. Stofnanir voru lagðar niður ef stjórnendur voru ósammála stjórnvöldum. Þjóðhagsstofnun. Mannréttindaskrifstofa fjársvelt í kjölfar gagnrýni. Embætti veiðimálastjóra var flutt útá land þegar yfirmanninn gagnrýndi ráðherra. 
Bitamunur eða fjár ?
 
p.s. er rétt af mér að skrifa í þátíð ?