Birna 的个人资料frú birna照片日志列表 工具 帮助
6月29日

Travelling

 
Við Eydís erum á leiðinni útí heim. Ég er búin að pakka og nánast hætt að vera stressuð. Byrjum á handboltamóti í Gautaborg (Partille). Ég verð fararstjóri (smá stressuð) förum svo til Danmerkur og heimsækjum Bjössa bróður og Önnu vinkonu.
Því næst komum við okkur einhvernvegin til Ítalínu / Toscana. Í gengum Prag ? París ? Eftir því hvernin vindurinn blæs. Ég vona að hann blási hér heima, ekki á okkur.
It will not be a Travelling Probelm
 
travelling_salesman_problem
 
b
6月23日

mínus

 
Núna þegar dagskráni seinkar trekk í trekk útaf fótbaltanum, þá vantar RUV mínus.  Annars hef ég langmest gaman af góðri markvörslu. Petr Čech,  Van der Saar, Volkan Demirel ..
 
b
6月22日

Stöð 3

 
Ég gekk á Esjuna áðan, uppað stöð 3, þar sem leiðirnar greinast. Þetta er allt að koma. Næst fer ég uppað læk, stöð 4. Mig langar bara svo til að hlaupa. Ætli ég megi ekki fara að hlaupa?
 
Sjúkraþjálfarinn minn, Linda Persson, er búin að samþykkja að tala yfir hausamótunum á krökkunum í Fram og kenna þeim upphitun og teygjur ef það skyldi forða þeim frá meiðslum. Passa krakkana okkar.
.. Vá, verið að segja upp flugmönnum. Kreppan tekur á sig ýmsar myndir. Þeir sem eru á of háum launum vegna verkfallaofbeldis, eru í veikri stöðu núna.
 
b

Birna

 
Mig langar í ísbjarnarfeld
 
b
6月21日

Góð báðum megin

 
Snúa reglulega til að grillast jafnt allan hringinn. Frosin krækiber úr bolla. Bók: Skotgrafarvegur eftir Kari Hotakainen. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2004. Það er ekki tilviljun. Ég lána hana út gegn vægu gjaldi. Í mörg ár lét ég fordóma gagnvart þunglyndislegum finnskum bókmenntum stoppa mig af að taka þessa bók úr hillunni, en núna átti ég ekkert annað ólesið. Nú er sólin farin úr garðinum, kannski nenni ég að gera eitthvað.
 
Stelpurnar unnu stórsigur á Slóvenum 5:0. Svooo glæsilegt !  Tyrkirnir komnir áfram í EM, þeir áttu það skilið eftir frábæran leik gegn Tékkum um daginn. Skemmtilegir.
 
Ég fór út að hjóla í kvöldsólinni og kaupa kjúklingabita í Suðurveri og rústaði gallabuxunum. Er mér ómögulegt að eiga nema einar gallabuxur í einu ?? Það er of mikið vesen að viðhalda fataskápnum.
 
b
6月6日

Elín og Braga

 
Sjáið þið hvað þessar vinkonur Baldurs eru flottar. Ég er rígmontin af að þekkja þær.
Baldur er líka montinn, kannski líka smá öfundsjúkur .. "ekki kom mynd af mér í blöðunum .. "
 
b
6月5日

Mikið betri fréttir

 
Ég datt óvart í að horfa á myndbönd af Maradonna á youTube. Það er ekki hægt annað en hlægja að leikgleðinni og leikninni. Ótrúleg snilld. Ég missti af fréttunum, það voru góð skipti.  Enn með brosviprur, engar verðbólguáhyggjur (as if) ekkert þras. Bara snilld, ást og tónlist.
 
 
 
 
b
6月4日

Aðgerðir

 
Jæja, það er komin dagsetning á krossbands aðgerðina mína. 3.október og ég hlakka til.  Sveinbjörn Brandsson sker steikina. Þá verð ég aftur slösuð og get hvorki vaskað upp né unnið. Ansans, eins og ég er að verða sterk.  þurka rykið af hækjunum.
Undanfarnar vikur hefur verið heilmikil aðgerð að gera afkvæmin að matvinnungum í sumar. Það er í höfn. Baldur verður skjalavörður í Glitni, byrjar á morgun. Hann var í atvinnuviðtalinu spurður hvort hann væri skipulagður. Það er bara til eitt svar við því "Nei". Hann fékk vinnuna út á fríðleikan.
 
Eydís verður í blaðaútburði og unglingavinnunni, en líklega aðallega í fótboltanum. Það er meiri aðgerðin að halda úti þessu stelpnaliði. Hrikalega spennandi leikur rétt áðan .. 3-3 á móti Þrótti R. Elva skoraði þrennu, Íris meiddist, dómarinn dæmdi ekki eitt víti og Áslaug þrusaði í fangið á markverðinum í öðru víti. Þetta var agalegt.
 
En jæja, æfingar á morgun og vinna og skóli.   Lífið er saltfiskur.
 
b
6月2日

Hvað er að ..

 
Hvað er að þessari setningu "Maður keyrði yfir konu" ?
 
Svarið er .. Hvað var hann að gera á bílnum inní eldhúsi ??
 
   Sonar-ómyndin er að reyna fyrir sér sem karlremba
 
b