Birna 的个人资料frú birna照片日志列表 工具 帮助
7月31日

Pissu-keppni

 
Núna keppast fjölmiðlar við að segja okkur hverjir borga hæsta skatta. Er það mikilvægast við greiningu á álagningaskránni? Hvaða upplýsingar ætli væru settar fram fyrst ef kona semdi þessa frétt?  Mér sýnist ég vera orðin lúin á gildimati samfélagsins.
 
b

15 stjörnur

 
Við fórum á Simpsons myndina áðan. Baldur borðaði poppið mitt, að öðru leyti var myndin frábær. Ég hló 15 sinnum.
 
b
7月30日

Hagur

 
Ef hagurinn er góður, hversvegna þarf þá hagvöxt ?
 
b
7月25日

glefsa úr tíma

 
Í tímanum í alþjóðaviðskiptum í gær kom ýmislegt skynsamlegt fram, t.d.   "Bankar hugsa bara um peninga"
 
b
7月24日

ekki lengur rík tík

 
Nú er ég búin með rúmlega allan peninginn. Millifærði nokkrar milljónir fram og tilbaka áðan.
Vala vildi að ég fengi mér annan kall í viðbót, þar sem ég ætti 2 börn og 2 íbúðir. En þessi kall er a.m.k. á við tvo, auk þess held ég væri nær að ég fengi mér tvo bíla :] rauða
 
b
7月23日

Yngvi says:

 
Yngvi er alltaf eitthvað að tuða. Ég sagði honum bara að blogga í staðin. Hér er það:
 
* Um meinta samkeppni á mjólkurmarkaði *
Nú er búið að semja við Færeyinga um frjáls viðskipti með mjólkurafurður. Þannig að manni gæti dottið í hug nú yrði einhver samkeppni á mjólkurmarkaði. En Mjólkurmafían sá við þessu, hún tekur bara sjálf að sér að flytja inn og dreifa færeyskri mjólk. Þannig geta þeir stjórnað vöruframboði frá færeyjum í samræmi við eigin markmið, en geta hótað bændum um að kaupa bara af færeyingum ef þeir eru með múður. En bændur eru eins og menn vita í einhverskonar vistarböndum og verða að skipta við mjólkursamlögin. En það er auðvitað í lagi því að bændur "eiga" mjólkursamlögin, og þau vinna í þeirra þágu. Hvenær fáum við alvöru samkeppni á þessum markaði?

Lota III - Ásta vann

Lota III
3,51% Ásta
1,58% Vala
1,06% Magga
0,97% Birna
-1,86% Yngvi
 
b
7月19日

Alþjóðaviðskipti

 
Ég var að fatta að ég er skráð í Alþjóðaviðskipti í HR. Kúrsinn byrjar í næstu viku!
Mér finnst eins og ég hafi unnið í lotteríinu. Var búin að steingleyma því að ég skráði mig.
Svona getur verið skemmtilegt að vera óskipulögð. Ég hlakka svo til, ég hlakka svo til, tralalalalæ!
 
b
7月17日

Burt með tollamúrana

 
Íslendingar hafa hvorki komið sér upp her né járnbrautum. Við höfum látið okkur stærri þjóðir um að leika sér með dáta og lestarteina.  Ég held því fram að tollgæsla hefði átt að fara í sama flokk.  Hún sé of kostnaðarsöm fyrir svona litla þjóð og hana hefði aldrei átt að taka upp.
Ef ég væri eini Íslendingurinn þá þyrfti ég að flytja alla þjónustu og allar vörur inn til landsins og væntanlega tollafgreiða þær sjálf. Ef ég byggi í voða stóru landi, ennþá stærra en USA, landi sem næði yfir alla jörðina, þá væri enginn innflutningur og engir tollamúrar.

draumur

 
Mig dreymir eiginlega aldrei, a.m.k. ekki svo ég muni, en ..

mig dreymdi í nótt að ég væri flutt í nýju íbúðina og færi á fætur fyrsta morguninn og skoðaði mig um, bara á nærbuxunum. (íbúðin var allt öðruvísi en í alvörunni) Ég gekk niður í sameignina, þar var mjög hátt til lofts og opið út .. líkt og ég væri í gömlu veglegu húsi í París eða Prag. Stigagangur sem væri að hálfu leyti opinn, með breiðum hringstiga og súlugöngum útí garð. Garðurinn var stór og fallegur eins og lystigarður og þar voru konur að spjalla saman með börn að leik, fallegur gróður og útskornir trébekkir, sandkassi og þvottasnúrur. Ég reyndi að láta fara lítið fyrir mér, því ég var bara á brókinni, en skoðaði mig samt vel um í morgunsólinni og fannst að mér myndi líka vel að búa þarna.
 
b

Sögur að norðan - 1982

 
Kiddý var með mér á herbergi 1.árið í M.A. Sumarið áður en skólinn byrjaði var ég í sveit á Torfalæk og hún vann í Essó sjoppunni á Blönduósi. Hún mátti borða eins mikinn ís í vinnuni og hana lysti .. og hana lysti!  Hún borðaði svo mikinn ís að maginn á henni kól og hún var fárveik og gat ekkert borðað í margar vikur. Þegar ég kom úr sveitinni hafði hún lést um 10 kg og ég þekkti hana varla aftur.
 
Mér finnst þessi saga góð og hef oft sagt hana. Ég rifja hana upp hér í tilefni þess að Kiddý kommentaði á bloggið mitt áðan. Skyldi sagan vera sönn? Eða segi ég sögur á norðlenska vísu, krassandi, hæfilega sannar sögur.
 
b
7月13日

Fimmvörðuháls í 37.sinn

 
Ég fer Fimmvörðuhálsinn frá Skógum yfir í Þórsmörk á morgun. Það á að heita að ég sé fararstjóri með saumaklúbbnum hennar Ástu og Vala kemur með til að tryggja gott veður. Veðrið verður ljúft og ég ætla að hafa með mér æðislegt nesti grillaðan kjúkling, hnetur, súkkulaði, samlokur með egg og tómat .. . og fossarnir eru svo fallegir og meeee kindurnar á heiðinni og svo verð ég í nýju gögnupeysunni minni -- ahhhh þetta verður dásamlegt!  Belgingur segir reyndar að það eigi að vera gott veður allstaðar á landinu nema nákvæmlega á Fimmvörðuhálsi :] en við höfum Völu.
Kannsk get ég platað Beggó til að lána mér Bergþórshvol til að gista í í kvöld. Þá þurfum við bara að keyra smá spöl í fyrramálið og getum lagt snemma af stað. Fimmvörðuháls - here I come, again.
 
b
 
p.s. ég verð líklega að taka með mér lítið nesti. Matvælaverð á Íslandi er hæst í Evrópu
7月12日

Baldur - riddari mannlegrar þekkingar

 
Ég er búin að setja inn myndir af Baldri mínum með húfuna.
 
Hann var fallegur í nýju jakkafötunum, með nýju klippinguna og stúdentshúfuna. En hann var líka þreytulegur elsku snúðurinn. Hann átti að spila undir söng og líka 3.kaflann í Tunglskins sónötunni og æfði sig alla nóttina og mætti ósofinn í útskriftina. Andri vinur hans var hjá honum um nóttina og veitti félagsskap og andlegan stuðning. Svona góðir vinir fást ekki keyptir á útimarkaði !
Undirspilið með Gaudeamus var undurfallegt hjá honum stráknum. Hann spilaði 3.kaflann 20% of hratt (rosalega margar nótur í þessu lagi!) en það slapp alveg. Ég hefði samt frekar viljað heyra hann spila fram gæsahúð hjá áheyrendum. Svo fórum við út að borða á Holtinu um kvöldið <dæs!> 
 
Í fyrra var Baldur að kenna ensku í Hvassó og einhver furðaði sig á því. Hafliði kennarinn hans sagði þá  "Það er svo undarlegt að hvað sem Baldur vill það gerist". Laukrétt, og nú ætlar hann til Japan.
 
b

Snemma beygist krókurinn

 
Eydís er í vinnu með Írisi vinkonu sinni. Þær eru að beygja króka og finnst rosa gaman.
Það fyllir ungu hjörtun stolti að standa sig vel,  og vasana af peningum.
 
b
7月11日

Lífið er hagfræði

 
Lota II í megrunarkappinu er í fullum gangi.
 
Línuritið er fyndið, lítur út eins og blævængur. þeir léttustu léttast mest og þeir þyngstu þyngjast.
þetta eins og hagfræðin, þau ríku verða ríkari. (as in rich bitch)
 
En til að hrista af sér spikið er upplagt að æfa hópdans .. a.m.k. horfa á hann, ótrúleg sýning
 
b

Career Opportunity

 
Síðan ég var að prófa nýja heimasíðu Kaupþings og skráði bullupplýsingar inn, fæ ég endrum og sinnum spennandi atvinnutilboð.  

Starv í Kaupthing Bank

Í sambandi við at virksemið okkara er munandi vaksið seinastu tíðina, sóknast vit eftir fólki til umsitingardeild okkara.
b
7月10日

Árgangur og árangur

 
Skólafélagar mínir í meistaranáminu í HR eru snillingar.
Stærðfræðingurinn og spjótkastarinn Vigdís Guðjónsdóttir sigraði í spjóti á Landsmótinu
og meistarinn Hilmar Finnsson skrifaði forrit sem getur lært að spila hvaða leik sem er (GeneralGamePlayer). Með GGP að vopni sigraði hann á alþjóðlegu móti slíkra forrita í Stanford.
Hilmar er búinn að lofa að tala á samlokufundi hjá félagi tölvunarfræðinga í haust.
Heimasíðunni fyrir mótið er ekki sérlega vel við haldið en hér er lokaniðurstaðan:
 
Rank Player         Total Score   Institution
------------------------------------------------------------------
1    CADIAPlayer      2723.50     Reykjavik University
2    Fluxplayer       2355.50     Technical University of Dresden
3    Ary              2252.75     University of Paris 8
4    ClunePlayer      2122.25     University of California, LA
5    UTexas LARG      1798.00     University of Texas, Austin
6    Jigsawbot        1524.00     India Institute of Technology
7    LuckyLemming     1250.50     Technical University of Dresden
8    WWolfe            821.25     Independent (Stanford student)
 
b
7月6日

Baldur verður stúdent á morgun

 
Hann Baldur minn, elsku erfinginn, útskrifast sem stúdent frá Hraðbraut á morgun.
Ungi nr.1 um það bil að fljúga úr hreiðrinu. Myndarlegur strákurinn með nýja klippingu og í nýjum jakkafötum. Hann stefnir til Japan í haust. Hann mun standa sig vel hvað sem hann svo álfast til að gera við lífið.
Ég er geðveikt stolt. Þetta tókst!
 
b
7月4日

Borgartún

núna heitir garðurinn minn Borgartún
þá hljómar það eins og ég sé að fara á fund í Borgartúni (höfuðstöðvum) þegar ég er að fara í sólbað heima
 
Vala er reyndar strax búin að bóka fund. Garðveisla Borgartúni
 
b
7月3日

skokk-iti-skokk

 
Ég var ennþá stirð í gær eftir Bláskógaskokkið þ.a. ég hljóp ekkert, en ég skokkaði 3-4km í morgun (eins og gömul kelling). En hei! ég ER gömul kelling.. gleymi því alltaf :]