| Birna 的个人资料frú birna照片日志列表 | 帮助 |
|
8月31日 FramfarirÞetta eru alvöru framfarir. Nú skilaði ég 33 mín fyrir frest og verkefnið var fullklárað !
% framfarirnar eru ógnvænlegar
b 8月29日 SkilafresturÉg var að skila af mér verkefni, 4 mín áður en skilafrestur rann út... sem er auðvitað nákvæmlega rétti tíminn. Maður notar þann tíma sem maður hefur, a.m.k. síðustu stundirnar af honum.
b Héðinsfjörður í sumarÉg fékk myndirnar hans Beggó frá Héðinsfirði í sumar. Ég á sjálf engar myndir frá sumrinu, þar sem myndavélin mín er í glatkistunni. Ég henti að sjálfsögðu þeim myndum sem voru ekki nógu góðar af mér. Palli var fararstjóri, stóð sig vel strákurinn.
b 8月28日 Prófessor Anna IngólfsdóttirAnna Ingólfsdóttir, kennarinn minn er orðin prófessor í tölvunarfræði, fyrst íslenskra kvenna
Ég er frekar stolt fyrir hennar hönd
b Dansmynd af Jóni Axeli og Millelinkur á myndina.. hún er copy varin
8月18日 Í skólanum, í skólanum ..Ég fór í skólann áðan, Háskólann í Reykjavík, spjallaði við Yngva sem verður leiðbeinandinn minn og við völdum saman stundatöflu.
Nú er ég bara í skemmtilegum kúrsum! þessum:
Öll kennslan verður í gamla Morgunblaðshúsinu. Kringlunni 1
Ég fæ að kenna dæmatíma, hugsanlega (vonandi) strjála stærðfræði, þ.a. ég fer kannski ekki alveg strax á hausinn og fæ líka felld niður hálf skólagjöld .. Ég sem var komin með kvíða yfir þessu öllu. Núna hlakka ég bara til, þó ég viti auðvitað að námið verður strembið. Eina önn sæki ég tíma erlendis, t.d. Kanada. Eða rannsóknarvinnu, sjáum til. skólastelpan
Taka stöðunaSkólinn
Ég fer í HR á eftir, fæ aðgangsorð að innra netinu og kyssi kennarana og svoleiðis. Mastersnám í gerfigreind, vonandi ekki of ryðguð. Kvíði smá fyrir, hlakka smá til. Er að telja peningana sem ég hef til að lifa veturinn af.
Hlaup Svo hlaupum við Palli og Eydís 10 km á morgun. Baldur
Baldur á að spila á píanó í Iðnó kl 14 á Menningar. Þar verður ein montin mamma. Stend uppá borði með spjald "ég er mamma hans". Baldur er kominn með gleraugu og listamanna hár. Ferlega sætur strákurinn! Hann er núna á seinna árinu í Hraðbraut.
Eydís Eydís keypti sér hjólabretti fyrir sína peninga (18þús!) , án þess að nefna það við mig fyrr en eftir á. Frekar sjálfstæð stelpan. Mér bara brá svolítið að hún væri svona stór. Núna er hún að æfa sig að "Olla" og fer á brettinu niðrá Ingólfstorg með vinum sínum. Risa-stór! Við kíktum í bæinn í gær og keyptum brettaskó og úlpu á Eydísi í Brim. Hún verður nú að vera alvöru brettagella. (ég keypti mér óvart rauða billabong peysu) Fimmvörðuháls
Svo göngum við Palli Fimmvörðuhálsinn á sunnudaginn. [ritskoðað ...] Kaffi Nú ætla ég á uppáhaldsbensínstöðina mína að kaupa kaffi ... k a a a f f i ..... b the ChippendalesÞórhallur í Kastljósinu átti setningu gærdagsins eftir viðtal við stripparana í the Chippendales
"Þetta eru sannkallaðir hugsjónamenn"
b 8月2日 Komin heim!Ég er komin heim úr Mörkinni. Nú er ég hætt að stinga af frá krökkunum og Palla, orðin þreytt á að sakna þeirra allra. Á heimleiðinni kom ég við á Laugarvatni til að taka á móti Palla sem var að koma úr 4ra daga göngu.
Á meðan ég beið eftir að gönguhópurinn skilaði sér kíkti ég á eina Karateæfingu á æfingabúðunum á Laugavatni. Ég fékk fiðring í skankana. Nú get ég loksins mætt aftur á karateæfingar og í vetur ætla ég líka á kumite æfingar (bardaga). Malin var búin að lofa að æfa með mér (mér sýndist hún vera komin með svarta beltið! =:-])
Í haust tekur við mastersnám í gerfigreind við háskólann í Reykjavík. O-jamm og já. Kannski tek ég seinni hlutann með vinnu, sé til. Get ekki lagst bara uppá Palla þó það sé gott.
Mér heyrist við vera á leiðinni norður um verl.m.helgina.
Sprengisandur / Askja / Laugar á landsmót. Palli fyrrverandi UMFÍ-gaur vill kíkja og Eydís á vinkonu á Laugum sem vill fá hana í heimsókn. Svo kíkjum við á Kílakot og Ásbyrgi og Dettifoss og böðin í Mývatni .. þangað til annað kemur í ljós. Plönin breytast hratt um þessar mundir. Hvað ætti ég að hlaupa 19.ágúst? Núna finnst mér allt styttra en maraþon hljóma eins og tímasóun.
b |
|
|