Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas Herramientas Ayuda

Blog


31 agosto

Styrkur

 
Ef sjávarútvegur er svona arðsöm og sterk atvinnugrein, hversvegna er hún þá styrkt af ríkinu? Ríkissjóður tekur þátt í að greiða laun í sjávarútvegi í gegnum sjómannaafsláttinn. Ég heyri eiginlega aldrei talað um það. Skrifa bara "hagsmunaaðilar" um sjávarútveg?
 
0skip
 
b

Dagfinnur

 
Friðrik er að hætta sem forstjóri Landsvirkjunar. Ætli það sé þá satt að dýralæknirinn Árni Matt fái þann stól fyrst honum tekst ekkert að lækna hagkerfið. Verður hann þá Lands-læknir?
 
001
 
b

Alltaf fjör á FL

Hér er Videó 2 um FL group

 

 
 
b
30 agosto

Ljós í myrkri

 
Ég datt inná ótrúlega Smart heimasíðu. Sá sem gerði þetta kann að skemmta sér í vinnunni! (Tekur smá tíma að hlaðast inn). Prófið t.d. að smella á Verðskrá. Við í félagi tölvunarfræðinga erum einmitt að uppfæra okkar síðu. Ég geri þá kröfu að hún verði a.m.k. eins flott.  Ohh damn, nú fattast að ég ætlaði í ljós

3d_ljosabekkur
 
b
29 agosto

Olía á eld

 
Innflutningur ætti að vera að minnka og minnka, en nei, nú er flutt inn 3xmeira af olíuvörum en í venjulegum mánuði. Var kannski aldrei keypt bensín á háa heimsmarkaðsverðinu?
 
oil-on-water
 
b

Se & hör

 
Ég frétti að Beggó bróðir væri í séð og heyrt, með nýja Lillann (bílinn) sinn. 2008_Pontiac_Solstice_side
 
Ég reikna ekki með að það komi í neinu blaði þegar ég tek við nýja bílnum mínum í kvöld :] en það verður gaman. Ég hugsa við Eydís skreppum útí ísbúð.
 
b
28 agosto

Nú er það svart

 
Hvenær byrjar CERN tilraunin? 10.sept? Verður jörðin þá gleypt af svartholi? Forvitnilegt .. 
Skemmtilegt að hugsa um hvað allt sem maður er að bauka er tilgangslaust, ef það eru bara 2 vikur eftir. Borða hollan mat.. ala börnin upp ..  bæta gæði gagna, skrifa fundargerð.. blogga ..
 
 
  
b
27 agosto

Menningar

 
Ég vaknaði fyrir allar aldir menningar-daginn til að fylgjast með þessu fólki sem má hlaupa. Ég hef eiginlega aldrei horft á, alltaf hlaupið með. Fyrst '87  7km, algerlega óæft og þurfti að ganga spotta og spotta. Sumarið '91 æfði ég undir stjórn Gunnar Páls Jóakimssonar og komst þá í mitt besta form síðan ég keppti á ungmennafélagsmótunum í gamladaga. Það sumar hljóp ég mitt fyrsta hálf-maraþon. (Eini sæmilegi tíminn sem ég á) Mikill persónulegur sigur, endasprettur og allt. .. já já nóg um það, ég ætlaði að skrifa um hlaupið á laugardaginn.
 
Hef aldrei skilið hvernig nokkur nennir að horfa á maraþonhlaup. Í London er mannfjöldinn eins og móttaka silfur-stráka alla leiðina. Lúðrablástur og læti. En <aftur komin útaf sporinu> . . það var svo gaman að horfa á allt þetta fólk hlaupa! Hver og einn að sigrast á sjálfum sér, yfirvinna letina, sigrast á nýrri vegalengd, nýjum tíma. Ég fékk hetju-andakt í hjartað. 
 
Glitnis marathon
 
Ég hjólaði útá nes og beið eftir þeim sem ég átti von á að sjá. Ég rýndi í hópinn mínútum saman og stundum sá ég einhvern sem ég átti hreint ekki von á eða einhver kallaði í mig og veifaði. Það er alveg greinilegt að ég hef ekki face recognition processing power (manngleggni) í svona lagað. Það var erfiðara fyrir mig að horfa en hina að hlaupa! Hrefna stökk framhjá eins og hind, með fystu mönnum. Arnar og Arnór hlupu í takt, mér skilst þeir séu búnir að vera að æfa saman og háðu einvígi ársins á marklínunni. Arnar sagði mér niðrí bæ að hann hefði bætt sig um 28 mínútur! Geri aðrir betur. Ég náði mynd af Yngva, enda stoppaði hann til að pósa en Ásta hljóp eins og vindurinn þ.a. ég sá hana aldrei.
 
Eftir að horfa á allan þennan hlaupa-dugnað fékk svo mikla æfinga-öfund að ég fór í ræktina og lyfti í 1,5 klst og svo heim og steinsofnaði.
 
 Hreyfing
 
Ég keypti mér bók* í rauðakross búðinni á menningarnótt (smá menning á 50kr.)
hún hefst á þessum orðum "Ég stökk á eftir strætó .."  en svona hefst einmitt "Íslenska orðtíðnibókin" sem er grunnur málvinnsluransókna á Íslandi.  Greinileg áminning frá æðri máttarvöldum um að gera eitthvað í málvinnsluverkefninu hjá Hrafni.
 
*Þessi menningarlega bók er "mín káta angist" eftir Guðmund Andra Thorsson
 

Ástin er international

 
Ég ætlaði að taka með mér fána til að veifa til strákanna niðrí bæ, en ég fann bara gay-pride fána. Þokkaleg snilld að fá Palla til syngja fyrir silfur-stráka. Áfram Ísland !
 
fáninn
 
b
25 agosto

Íhaldið

 
Bændaforystan að tala um efnahagsmál og dýralæknir sem fjármálaráðherra. Ég er ekki bjartsýn.
Bandaríkjamenn vildu ekki gáfaða konu sem forseta, nú eru þeir að gugna á að velja vilji gáfaðan og óreyndan vinstrisinnaðan svertingja. Já, verst að þeir geta ekki kosið Bush enn og aftur.
 
.. en handboltalandsliðið okkar er með fallegar tennur (ég varð að vera smá jákvæð)
 
og núna þegar ÓL eru búnir fjalla íþróttatímarnir um kalla-fótbolta. (úps! neikvæð aftur)
 
b
23 agosto

Fullkomin !

 
Eydís var að fletta tímariti, svo fór hún að klippa útúr því það sem henni leist best á. Fullkomið hár, fullkomnir fótleggir, fullkomnar varir, fullkomnir skór (hvor af sinni tegund) fullkomin augu .. og raðaði saman í klippimynd. Hún er fullkomin!
 p 002
 
b
22 agosto

Stórast í heimi !

 
Búið að rúlla spánverjunum upp.  Nú er það gull eða silfur, ég meina gull...
 
áj segir
"..í kreppunni er gott að sjálfstraustið sé ekki of lítið. Hins vega má það ekki heldur vera of mikið. Þess vegna held ég að það sé betra að einhver önnur þjóð fái gullið."
 
Ég er ósammála
 
b
 

sönn saga úr mötuneytinu


Five cannibals get appointed as programmers in an IT company. During the welcoming ceremony the boss says: "You're all part of our team now. You can earn good money here, and you can go to the company canteen for something to eat. So don't trouble the other employees". 

The cannibals promise not to trouble the other employees. Four weeks later the boss returns and says: "You're all working very hard, and I'm very satisfied with all of you. One of our cleaners has disappeared however. Do any of you know what happened to her?" The cannibals disavow all knowledge of the missing cleaner. 

After the boss has left, the leader of the cannibals says to the others: "Which of you idiots ate the cleaner?" One of the cannibals raises his hand hesitantly, to which the leader of the cannibals says: "You FOOL! For four weeks we've been eating team leaders, managers, and project managers and no-one has noticed anything, and now YOU have to go and eat the cleaner!"

b

21 agosto

Burrrr ..


Ég held ég sé búin að kaupa mér bíl, eftir nokkrar sms sendingar milli Safamýrar og Garðabæjar erum við búin að koma okkur saman um verð. Ég valdi bílinn sem var skráður í símann minn sem "Honda pimp". Typical Selfossbíll, reyndar ekki rauður. Brummm.. brumm

Ég var voða glöð, þartil Beggó bróðir sendi mér link á nýja Lillann sinn : http://wwww23.pontiac.com/solstice/

 
b

15 agosto

Borgarstórnarmál

 
ég nenni ómögulega að hafa skoðun á borgarstjórnarmálum. En þetta er ágæt kennslustund fyrir Baldur minn. Hann var einmitt að velta lýðræðinu fyrir sér. Hvað er lýðræði? Hvenær er lýðræði? Er lýðræði gott?
 
b
14 agosto

Ekki hlaupa

 

Linda segir:

Ekki hlaupa, vegna óstöðuleikin í hnénu geturðu farið að skemma brjóskið og liðþófarnar.

ég bara hlýði ::[  og læt nægja að hjóla og einoka hamstring tækið í Hreyfingu

 

b

13 agosto

Klapp klapp

 
Greiningadeildir bankanna eru klappstýrur efnahagslífsins. 
 
b
12 agosto

Heimsmeistarar hvað !

 
Við héldum mikilvægan hópfund og horfðum á seinni hálfleik á milli Íslands og Þýskalands. Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld, Þvílík snilld
 
33-29 sigur á heimsmeisturunum. takk fyrir það.
 
b
05 agosto

Norður og niður


Baldur minn er kominn með bílpróf. Ég ætlaði að gefa honum bílinn minn þegar þeim áfanga væri náð, en það átti að verða fyrir 2ur árum. Nú væri dósin mín fremur refsing en gjöf. En hvað um það, hann "skutlaði mér" til Grundarfjarðar á föstudaginn (á refsingunni) þar sem hann ætlaði í heimsókn til kærustunnar.  Löggan stoppaði hann þegar hann beygði inná Vatnaleiðina yfir Snæfellsnes. Baldur gat bara framvísað blaðsnepli sem ökuskírteini. Löggan var frekar tortryggin og Baldur var frekar stressaður, sem gerði lögguna enn tortryggnari, en hann hafði ekkert gert af sér og það gildir vanalega.

Eftir kaffi og meððí hélt ég áfram norður og keyrði útúr góða veðrinu inní svarta-þoku á Laxárdalsheiði (59). Þegar ég kom niður hjá Borðeyri var ég komin með nóg og svaf á tjaldstæðinu. Borðeyri, stærsti smábær í heimi. Minn staður.   

Daginn eftir vaknaði ég í klassískum sudda og norðan garra. Hvernig datt mér í hug að yfirgefa sólina !? Ég rúllaði til Hvammstanga í sund og skolaði því niður með kaffi, þá heldur skánaði skapið og ég hélt mínu striki norður.

Blönduós - með tilheyrandi kaffibolla og kökum hjá ömmu og Rúnari. Gréta kíkti við og lofaði að skila kveðju til Arísar sem hefur skotið rótum í Danmörku og róta-rótum (hún er orðin amma).

Þaðan fór ég Þverárfjall yfir til Skagafjarðar en sá enga ísbirnu, pínu svekk.

Ég fór Fljótin yfir til Ólafsfjarðar, ég hef ekki keyrt þessa leið síðan ég var á gulum Volvo Amazon '66 módel. Það var nú bíll í lagi. (þetta blogg er að breytast í bílaþátt)
Fljótin er fögur .. ég sendi einn fingurkoss að Bjarnargili, þaðan sem Bjarni Trausta er, skólabróðir og Interrail-ferðafélagi og karl faðir hans, Trausti skíðagarpur sem var með í Héðinsfjarðar og Hvanndalagöngu FÍ fyrir 2ur árum. Góður göngufélagi. Hann dreif allan hópinn í að synda í hverjum polli sem á vegi varð, enda dásamlegt veður.

Ég mætti akkúrat í mat á Ólafsfirði. Þar voru nokkrir vinnufélagar að hita grillið.  Upphófst gleðskapur og ég naut góðs af og fékk gistingu í skjóli frá gjólu. Þau voru búin veiðistöngum og vildu draga björg í bú. Ég er heldur á móti slíku stússi og kaus að lesa morðsögu og sötra kaffi. Mér var hlýrra en þeim.

Ég ók í gegnum Ólafsfjarðar göngin, þegar ég nennti á fætur daginn eftir (þau fóru að veiða kl 7 - múhahahaha, ekki ég sko..)   og heimsótti Heiðu og Hjalta litla frænda minn á Dalvík. Hann er orðinn 2ja ára og ég hef aldrei séð hann áður, nema á mynd.  Það var gaman að kynnast þeim og spjalla við Heiðu og Palla. Þau eru langt komin með að gera upp hús á Dalvík og eru í þann mund að flytja inn. Mér hljóp kapp í kinn og er búin að setja saman eina bókahillu, farin að raða saman eldhúsinnréttingu í huganum og velja flísar á pallinn. Í kvöld pússla ég saman fataskáp fyrir Eydísi. Þetta stuð endist vonandi út vikuna.

Á heimleiðinni kom ég aftur við hjá ömmu og Rúnari. Þetta var góð helgi. Grillveisla og 2 kaffitímar hjá ömmu.

Þegar ég kom heim og steig á vigtina, komst ég að því að hún er eitthvað biluð ..

b