| Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas | Ayuda |
|
28 septiembre BlackJackÉg er að forrita BlackJack ( öðru nafni Jolly Rogers öðru nafni 21 ) og láta "agent" læra að spila skynsamlega. Ég er að berjast í því að láta C# gera einföldustu hluti fyrir mig. Eftir áratuga brölt í Oracle PL/SQL kann ég ekki að forrita. Má ég ekki bara leysa þetta í SQL ? Ég skilaði fyrsta verkefninu í Excel. Það virkaði ekki :> en hjálpaði mér að skilja fræðin betur.
- Suss stelpa! farðu nú að vinna
21 septiembre Allra meina bótÉg mætti í karate í gær. Það er allra meina bót, þarf að mæta vel núna.
Magnús Blöndal kenndi okkur. Hann er skýr, þægilegur og kumite miðaður.
Ég heiti Birna, ég er laumu-golfari.
get varla sagt frá þessu eins og ég hef alltaf haft mikla fordóma gagnvart golfi;
"Snobb! "
"Kannski þegar ég verð komin á ellilífeyri"
.. og fleira í þeim dúr
Ég keypti mér kort í Básum og reyni að slá 1-200 kúlur útfyrir pallinn. Ég með blöðu í lófanum.
b
Vala benti mér á réttu myndavélina. Nú þurfa vinir mínir ekki að fara í megrun ! 20 septiembre SkólatímiÞað skemmtilegasta sem ég geri er að læra. Sitja í tímum, lesa, vinna verkefnin ..
Nú lítur út fyrir að ég hafi meiri tíma og orku til að sinna skólanum. Sem er gott.
og þegar ég þarf að hvíla sig frá náminu horfi ég hugfangin á eitthvað skemmtilegt ...
b Leikhússlíf at randomÉg lagði hart að Palla að kaupa miða á Pétur Gaut. Ég ætlaði alls ekki að missa af honum. Rosa góðir dómar, Ingar Sigurðsson og allt. Ég sá reyndar í blaði í gær að "einhver" hljóp í skarðið fyrir Ingvar þar sem hann er útí London! What! og enginn segir okkur neitt þegar við kaupum miða á fullu verði. Ég kaus að gera ekki mál úr þessu þar sem Palli var búinn að vera svo sætur að bjóða mér í leikhús.
Við mættum fín og flott í leikhúsið í gærkvöldi, lentum í ógöngum með að fá sæti. Eitthvert fólk í okkar sætum og númerin stemmdu ekki alveg ?? En leikritið var fínt, tónlistin góð og bara skemmtilegt (einhvernvegin hafði ég ekki gert beinlínis ráð fyrir að Pétur Gautur væri skemmtilegur.. ) ... og tónlistin var flott og passaði vel við verkið, sem varð til þess að ég kveikti á perunni. Við vorum á "Eldhús eftir máli". Pétur Gautur er sýndur í "Kassanum" sem ég veit ekki hvað er.
Þetta var skemmtilegt, ég hefði aldrei látið mig dreyma um að draga karlrembuna Palla á leikrit sem heitir "eldhús" eitthvað. Kannski er þetta leiðin til að velja leikrit/myndir. Detta inná random sýningu.
Svona sá ég I
b
ps: talandi um skemmtilegar frásagnir. Hér er ein ... 17 septiembre Go-kart og langur laugardagurGo-kart
Við fórum í Go-kart, framhaldsnemarnir og kennarar í tölvunarfræðinni í HR. Björn Þór stóð fyrir því að sjálfsögðu, doldið hans stíll :] Hann gerði mig ábyrga fyrir mannorði kvenþjóðarinnar allrar! þar sem ég var eina stelpan. En þetta gekk bara vel. Ég miðaði við að vera Bjössa bróður ekki til skammar. Hann keppti í Go-kart útí bretlandi um daginn (sjá 1.sept.2006) og á 36 sek bestar á brautinni, sem er ca. brautarmetið. Skiptineminn okkar hann Wolfgang sigraði, enda frá Austurríki. Ég kom sjálfri mér (og öðrum) á óvart og átti næst-besta lap-time (41+sek) en lenti bara í 4.sæti þar sem ég sneri bílnum og missti nokkra framúr mér og var ekki búin að ná þeim öllum aftur þegar keppnin var úti. Þetta var stuð. Gaman að keyra eins og vitleysingur og fá hrós en ekki skammir fyrir. Grrr! Fannar litli pottormur á 38:50, ég er hætt að monta mig. Um kvöldið fórum við að borða á Kringlukránni. Ég þekki orðið nokkra í sjón og er búin að læra 2-3 nöfn.
Sigling
Laugardagsmorguninn var brosandi þegar ég vaknaði. Yndislegt veður. Palli (senior) bauð mér í bátstúr, ég þóttist ekki hafa tíma, en veðrið var svo dásamlegt, stillt og bjart og milt að ég gat ekki annað en farið með. Bara rétt aðeins smá hring .. Við fórum fyrst útí Viðey og skoðuðum listaverkið „Blind Pavilion“ eftir Ólaf Elíasson. Sigldum svo í rólegheitum í kringum eyna og veifuðum veiðistönginni en fengum (sem betur fer) ekkert. Kyrrðin var alger og borgin falleg og tíminn afstæður.
Palli skilaði mér í land og fór svo sjálfur í veiðitúr og var lungað úr deginum. Hann kom heim með fisk og fugla. Ég fékk 3 fugla. Hinn Palli fær mat ..
Fram
Ég kom alltof seint á uppskeruhátíð Fram... ekki alveg að standa mig í þessum strákaklúbbi. Bjartur kvaddi, hann er byrjaður að vinna á Húsavík sem "Framkvæmdastjóri Fjármála- og stjórnsýslusviðs" já, já.. langur titill. Hann mun standa sig vel, toppmaður. Ég sakna hans. Krakkarnir fengu verðlaun fyrir sumarið, og svo var grillveisla og leiktæki og handboltamót og FRAM-terta. Þetta er gott samfélag.
Niðrá Laugardalsvelli var Fram-HK leikur. Við unnum 1-0 fínt að enda sumarið með sigri, en HK fögnuðu gríðarlega þar sem þeir komust í meistaradeild í fyrsta sinn. Stuðningsmenn HK voru menn leiksins.
Farðu í heimsókin Mikki !
Vala bauð í kaffi og súkkulaði köku. Hún er að læra á nýju kaffi"vélina" sem lítur út eins og skjöldótt kýr. (Muuuuu-undu eftir kaffinu) Súkkulaðikakan var rosaleg! örugglega súkkulaði í henni. Svo fór ég í mat til mömmu og hreinsaði ripsberin af runnunum hjá henni til að sulta. Ég geri eins og Lilli klifurmús. Fer í heimsókn þegar ég er svöng og nenni ekki að elda.
b
14 septiembre ég er á skrá !Ég er á skrá hjá Félagi Maraþonhlaupara - ég er opinberlega, alvöru maraþonhlaupari.
b 12 septiembre StærðfræðisnillingarÞetta er alger snilld :] með fannst lim-> dæmið best, já og langhliðin (x)...
b Langidalur í ÞórsmörkÉg á tók nánast engar myndir í Þórsmörk. Myndavélin mín tapaðist í vor. Ég var heilt sumar á fallegasta staðnum á Íslandi og var ekki með myndavél. En ég notaði augun og notaði þau mikið. Samspil birtu og veðurs sýndu mér fjöllin og jöklana á nýjan hátt á hverjum degi. Kvöldbirtan á Stakkholtinu, Hátindar í rigningarmóðu, óveðursský yfir Útigönguhöfða, Mýrdalsjökull í bleiku morgunhúmi... og traktorinn
Enn og aftur nýt ég góðs af því hvað Beggó er duglegur að taka myndir .. < sjá Langidalur >
b 11 septiembre 1892I am a witch ofcourse, and I just might be turning into a lesbian .. :]
The feminist agenda is not about equal rights for women.
It is about a socialist, anti-family political movement
that encourages women to leave their husbands,
kill their children, practice witchcraft, destroy capitalism
and become lesbians.
- Pat Robertson, repúblíkani og kristinn trúarleiðtogi, 1992. b Hugsun dagsins ..Þetta er innleggið frá Wordsmith í dag. Sumt fólk er gott í gegn. Vá, hvað maður á langt í land.
We win justice quickest by rendering justice to the other party.
-Mohandas K. Gandhi (1869-1948) 06 septiembre drepum (dæma-)tímannTilvitnun In the small matters trust the mind, in the large ones the heart.
-Sigmund Freud (1856-1939)
Ís Allt sem þú þarft að vita um ís http://www.foodsci.uoguelph.ca/dairyedu/icecream.html
I scream, you scream, we all scream for icecream Magni-ficent http://www.magni-ficent.com/ Vítamín I've never been a vitamin,
I hope to never be one, But I can tell you, anyhow, I'd rather C than B1
05 septiembre KarateNú er haustönnin hafin hjá karatefélaginu Þórshamri og markmiðið er að mæta 90-100% og þreyta gráðun fyrir 5 kyu (blátt belti) fyrir jól. Sífellt fjölgar fallega og skemmtilega fólkinu hjá Þórshamri, ég frétti að winkona mín væri að byrja að æfa :]
Birkir taldi á íslensku!! í gær. Ég ætti eigninlega að hvísla þessu: Birkir taldi á íslensku!! í gær
.. en ég er að fara að lesa skólabækurnar og ydda blýantinn. (verður yddari það næsta sem krakkarnir vita ekki hvað er? ) 03 septiembre Brúarhlaup og sundHelsta afrek helgarinnar var að hlaupa hálft maraþon á Selfossi á 2:02. Mér finnst ég alveg vera í formi til að setja persónulegt met í hálfu. (hugsa til Akureyrar eftir 2 vikur, hugsa um 1:50 .. )
Palli lét sig hafa það að fara sitt fyrsta hálfmaraþon. Hann þurfti að vísu að ganga síðasta spölinn, fékk krampa, en kláraði engu að síður.
Ég er á því að það ætti að veita sérstök verðlaun þeim sem sigrast á vegalengd í 1.sinn. Það er persónulegur sigur þegar maður hleypur 10km, hálf-maraþon, maraþon í fyrsta sinn. Ég ætla að prófa að nefna þetta á hlaup.is
Ég ætti eiginlega að ganga með verðlaunapeninginn á mér, þarsem ég er ennþá með strengi.
Í sumar hef ég komist á bragðið með að synda í öðrum hverjum polli sem á vegi mínum verður. Í Hvanndölum syntu margir í tjörn (líklega mógröf) sem Trausti frá Bjarnagili hafði vígt og í Héðinsfirði í 2ur tjörnum, enda var veðrið með eindæmum gott og hressandi að skola af sér göngusvitann.
Ég synti í Ástjörn eftir Sigurrósar-tónleikana í Ásbirgi. Það var dásamlegt. Vatnið var milt, veðrið gott og unhverfið fallegt.
Til að kveðja Þórsmörk, synti ég í Krossá, hún var köld.. og grunn.. og straumþung.. og skítug. En ég synti samt, örugglega 3-5 sundtök.
Svo í dag, í blíðunni, synti ég í sjónum í Nauthólsvík. Ég fór aðeins útfyrir línuna, vatnið er kannski 5 gráðum kaldara fyrir utan, en alveg hægt að synda í því.
Minna fór fyrir skólalærdómi ..
b |
|
|