| Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas | Ayuda |
|
28 septiembre Berlín !Við fljúgum til Berlínar á eftir. Þetta verður gaman, nema kannski akkúrat hlaupið, það verður erfitt. Ég er langt í frá í formi til að hlaupa maraþon. Mér finnst ég lítið hafa skánað í lærinu og búin að "hvíla" mikið þ.a. æfingin hefur ekki verið uppá marga fiska. Þetta verður tekið með láta tímann líða án þess að hætta að hlaupa. Með þolinmæði og þrjóskusvip. Ég ætla að kaupa mér svarta fína íþróttaskó sem ég get notað bæði með gallabuxum og pilsi. Ég get ekki gengið um alla Berlín á háum hælum. Sérstaklega ekki eftir maraþonhlaup. Svo kannski einn öl.
b fyrir berlín 27 septiembre Hugljúft haustljóð
26 septiembre GötuverðHvað er eiginlega gert við allt þetta dóp sem kom á land fyrir austan ? Hvaðan kom launabónusinn sem löggan fékk?
b Ég ræð !Ræður Landsvirkun þessu? Hún er í viðræðum við 12 erlenda aðila um sölu á raforku. Er til næg raforka? Ræður Landsvirkjun því á hvaða verði hún er seld? Stjórnar Landsvirkjun þróun atvinnuvega á Íslandi? Álver vs. netþjónabú. Hefur enginn annar neitt um það að segja? Hvað með atvinnuvegaráðuneyti ? Umhverfisráðuneyti? Fjármálaráðuneyti - já eða jafnvel við, fólkið sem býr hérna og Á landið og orkuna.
Það held ég nú!
Annars hef ég engann tíma til að rífast. Ég á eftir að fara yfir 50 verkefni og pakka fyrir Berlínarferðina (úff, maraþon stress í maganum) og vinna á morgun og svo þarf ég að skila forritunarverkefni næstum strax eftir að ég kem heim aftur. Já, og finna útúr því hvað ég geri við Eydísi á meðan ég er í Berlín. Pétur er líka einhversstaðar á þvælingi.
Ég setti inn þessa fallegu mynd af hindberjum í skál til að fá smá kyrrð og fegurð. Iceland in a nutshell"For someone who is curious about the Iceland experience, we can suggest this: to get the true sensation, grab your weather report and your coffee, and sit in the freezer while burning a hundred dollar bill..."
Appeared on www.mountainzone.com a while back.
b 22 septiembre SpíttHámarkshraðinn er 70. Ég keyri á 90. Allir hinir bruna frammúr !
ég fer svona hægt vegna þess að ég fékk mér rauðvin með matnum.
Er þetta íslenska umferðarmenningin í hnotskurn?!
b Á síðustu stunduÉg var að skila inn verkefni í Málvinnslu kúrsinum hjá Hrafni. "Tilreiðari" eða Tokeniser, skrifaður í Perl. Það er nokkuð skemmtilegt og skrítið forritunarmál. Skilafresturinn var til kl 23:59 og ég skilaði síðustu skránni kl 23:58. Ég gleymdi að við áttum að skila með skipanaskrá sem keyrir upp forritið . . en það rétt slapp undir hurðina áður en kerfið lokaði á mig. Mamma kíkti í heimsókn áðan og ég varð skelfingu lostin og nánast rak hana út. Ég var að hnýta endahnútana 20 mín fyrir skilafrest. There is no time like the last time!
b 15 septiembre Old Perl Programmer HaikuÉg fann síðu með "Perl ljóðum".
b 14 septiembre Google er 10 ára !Hugsa sér hvað tímarnir breytast. Nú er google eitt af því sem er alltaf við hendina og manni finnst ómissandi. Eins og gemsinn. Ég átti ekki gemsa fyrir 10 árum og saknaði þess ekki. En ég man að mig vantaði almennilega leitarvél. Aðrar leitarvélar sem skiluðu mér 100.000 óáhugaverðum niðurstöðum gerðu lítið annað en eyða mínum tíma.
Núna er Wikipedia.org mitt uppáhald og þegar Google skilar mér Wikipedia síðu, þá skoða ég hana fyrst.
Þessi verkfæri og netið verða örugglega jafn stór í sögunni og ritmálið og prentvélin. 1.000x auðveldara að dreifa upplýsingum.
b 13 septiembre MótvægiÍ Bolungarvík verður farið útí byggingaframkvæmdir þegar fiskverkakonur missa vinnuna.
b TiltektÉg er að keyra mig á bólakaf .. Nám, vinna, kennsla, hlaupaæfingar, sjúkraþjálfun, íbúð, kærasti, messuhópur, stjórn Fram og stjórn FT, foreldrafélag, ferming, bíll, elda, skúra, þvo, peningar.. Þetta er bara OF MIKIÐ. Ég er farin að missa bolta í gólfið. Ég vakna upp um miðja nótt og held ég hafi gleymt að ég ætti að kenna... Núna er ég í tiltekt. Hætt í Semantics í HR, búin að ákveða að selja Safamýri 38, nóg að eiga eina íbúð og búin að segja elsku ofdekraða unglingnum það. (en það var erfiðara en að ákveða að selja) . . það er langt í að ég upplifi Zen.
What IS the meaning of life ? 42 ?
b Ég er appelsína..
Nei, úpps! núna er ég græn .. Sellerí ?
b 09 septiembre Góð stelpa !Erum við ekki alltof stillt ? Vel upp alin og góð og vön því að láta sjá um okkur og ekki hugsa. Treystum því að stóri bróðir (systir?) sjái um okkur og horfum á landsleikinn. Við höfum brauð og leika og nennum ekki að gera neitt. Ég man þegar þúsundir kvenna gengu niður Skólavörðustíginn þegar þær voru búnar að vinna fyrir sínum daglaunum fyrir kl. þrjú.
Lögreglan fékkst ekki til að loka Lækjargötunni þ.a. ræðuhöldin fóru fram á Ingólfstorgi, þó var deginum ljósara að engin bílaumferð kæmist eftir Lækjargötunni hvort eð er. Hvað ef þetta hefði verið strákaganga? Ég tók þátt með því að rölta niðrí bæ með vinkonum mínum, án þess að mála götuna bleika. Góð stelpa!
- - -
Ég byrjaði á þessari færslu útaf því að ég er hrædd um að ekkert verði gert í því að brotið er á starfsfólki við Kárahnjúka og víðar. Gissur Pétursson forstjóra vinnumálastofnunar fór austur og veifaði fingri, úúúú! AFL fordæmir vinnubrögðin .. Ráðherra boðar eftirlitsátak? Hvað gerir AFL? Það er augljóst að Vinnumálastofnun gerir ekkert, frekar en hingað til. Hvað gera fjölmiðlar? Eru allir svona "góð stelpa!" Það er vitað mál að svona hefur þetta verið árum saman. .. Svo er verið að tala um að við getum ekki gert fríverslunarsamning við Kínverja vegna þess að aðbúnaður verkafólks sé ekki boðlegur þar. Hvað með að laga til hjá okkur?! b 07 septiembre Séð & heyrt vísindagreinarmbl.is segir frá japanskri rannsókn sem sýni að fólki sem fer snemma á fætur sé hættara við hjartakvillum. Stórmerkilegt! ef það fylgdi ekki sögunni að flestir þeirra sem fóru snemma á fætur hafi verið eldra fólk!!
Mér finnst þetta ferlegt. Í rauninni er verið að af-mennta fólk með því að bera svona bull fyrir það. Áherslan er bara á að búa til fyrirsögn sem vekur áhuga (sérstaklega þeirra sem sofa frameftir). Mogginn er Séð&heirt vísindageirans. http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1289916 b 06 septiembre það virkar að sparkaNú er búið að sparka nógu mikið í Vinnumálastofnun þ.a. þeir loksins hundskast til að gera eitthvað í því að verktakafyrirtæki eru með óskráða starfsmenn í vinnu. Þetta hefur viðgengist árum saman. Árum saman ... Núna er búið að segja í sjónvarpsfréttum að þeir séu ekki að standa sig. Þá loksins leggja þeir frá sér kaffibollann og standa upp. Kannski hafa þeir leyfi til þess núna þegar það er búið að reisa Kárahnjúkavirkun.
Ég er hjá sjúkraþjálfara og í íbúfeni og að verða góð í lærinu. . Í hvern þarf að sparka núna ?
b
seinna sama dag .. ég skil þetta ekki alveg. Átti ekki að stöðva framkvæmdir kl 11 í morgun!? Ég legg til að forstjóri vinnumálastofnunar verði rekinn. Kæri félagsmálaráðherra . .
03 septiembre Pasta Carbonara og pólitíkÉg sá konu elda pasta Carbonara í sjónvarpinu um daginn og er búin að vera með það á heilanum síðan. Þvílíkt djúsí og "næringarríkur" réttur. 6 egg, hálfur bolli af parmesan osti og peli af rjóma og svo auðvitað beikon.
Ég er búin að kaupa parmesan ostinn á 800 kr! Hvenær verða tollamúrarnir um landið lækkaðir þ.a. saklausar íslenskar húsmæður geti eldað pastarétt án þess að höggva skarð í VISA kortið?
b |
|
|