| Perfil de Birnafrú birnaFotosBlogListas | Ayuda |
|
30 septiembre Baldur orðinn enn stærriSonar-ómyndin varð 19 ára í dag. "Allt er í steik á afmælinu mínu!".
Til hátíðabrigða hélt ég matarboð fyrir hann og vinina og fóðraði þau á tikka masala kjúkling, samsæriskenningum og berjaskyri. Til að halda pólitískri vitund, lukum við kvöldinu með því að horfa saman á V for Vendetta
b 29 septiembre Yes ministerGeir Haarde sagðist ekki vita til þess að Landsbankinn og Glitnir "sameinist" í næstu viku. Í þáttunum "Yes minister" í gamladaga þýddi svona svar að hann treysti sér ekki til að ljúga með sterkara orðalagi. Ég trúi því uppá Davíð Oddsson að hafa yfirtekið Glitni á því verði sem honum þóknaðist til að setja Jón Ásgeir á hausinn og geta svo selt Landsbankanum á spottsrís í kjölfarið. Ásta er ung og saklaus og trúir mér ekki. Hún er þreytt á samsæriskenningum um Davíð. En hún hefur heldur ekki séð hann tala um þá sem hann hatar. Hún veðjaði við hana að Landsbankinn muni eiga Glitni eftir 3 vikur. Ég ætti ekki að fara svona með vini mína. Ég ét hattinn minn ef þetta gengur ekki eftir (og borga Ástu) b Djö ..Ég er aðeins farin að verða þreytt á Davíð. Hann er enn við stýrið. Ætlar hann að gefa Björgúlfi Glitni ?
b MarkaðurinnNú kæmi sér vel að eiga tímavél
b Prímary"Þeir" voru að finna nýja prímtölu. Hvar skyldi hún hafa verið ?
b hellingur tilEiga bankarnir haug af gjaldeyri ? Það segir Egill. Satt eða lygi ?
b 22 septiembre Kastljósið á dýralækninumMér finnst fráleitt að svo mikið sem nefna orðið "þjóðarsátt" á meðan eftirlaunaósóminn er enn í gildi.
b 21 septiembre Durch Liebe erlöstFallegt fólk í dásamlegri formúlumynd. Seriously, sófinn var bara of þægilegur til að ég nennti að standa upp.
Auk þess er ég orðin svo gömul að ég heyri næstum ekkert
b
Upp um flokkÉg var að uppfæra blogg síðu fótboltastelpnanna, (fram4fl) en fattaði þá að þær eru alls ekki í 4.fl lengur. Nú eru þær í 3.flokki og hafa fengið 10.bekkjar stelpur í lið með sér. Það lítur út fyrir að núna á 100 ára afmælisári Fram, muni takast að halda úti 3.flokki kvenna í knattspyrnu. Þetta er sögulegt og ég brosi í gegnum tárin á meðan ég basla við að búa til nýja blog síðu. b Klappstýrur efnahagslífsins eru að standa sig
... neðar á síðunni segir :
ég ætla að mæta, síðustu forvöð að ná einhverju útúr bönkunum b
18 septiembre Mola frá KólumbíuBeggó bróðir talaði um MOLA á ruv.is og sjónvarpið sýni myndir af því í fréttalok í gær. Núna er verið að sýna það í Gerðubergi.
< mér tekst ekki að bæta inn myndum, óttalegt vesen (bannað að blóta) >
< jú ok gekk :] >
b Hjartab 14 septiembre SpottiKolfinna Baldvinsdóttir skrifar í Fréttablaðið um nýútkomna bók eftir Kristínu Jónsdóttur um kvennaframboð í Reykjavík. "Hlustaðu á þína innri rödd" og endar á þessum orðum:
Dæmigerðar aðferðir til að reyna að kæfa skoðanir sem fara gegn ríkjandi valdastrúktur. Sömu aðferðir eru notaðar til að gera lítið úr málstað þeirra sem ekki vilja virkja allt og hvaðsemer. Eins og ríkjandi valdhafar (með embættismenn í fararbroddi)
Mahatma Gandhi sagði:
b
12 septiembre VÍ kvöld verður grímuball í vinnunni. Skemmtinefndin keypti strápils á alla deildina. Ég fer EKKI í strápils! Ég mæti í gerfi V sem var í gerfi Guy Fawkes í V for Vendetta. Ég er búin að redda grímu, stígvélum, buxum, skirtu, skikkju, hárgreiðslu, kúli .. en á einhver hatt handa mér? en hnífasett ?
b |
|
|