| Birna's profilefrú birnaPhotosBlogLists | Help |
|
frú birnaAllir geta sungið nýja þjóðsönginn June 13 bakarí og bankibakarinn í Grimsbæ vill stofna öðruvísi banka. Ég vil heyra meira um það. Fer og kaupi mér brauð á morgun March 27 Peysan ! Ásdís Birgisdóttir textílhönnuður sér um handavinnuþátt Húsfreyjunnar b March 26 Stór vinnustaðurGeoFriend á Facebook segir: Pornwadee is one of my farthest friends at 9,945 km En hún situr við hliðina á mér :] b March 25 LaugavegurinnÁsta ætlar að hlaupa Laugaveginn í sumar. Ég horfi bara á vídeóin og læt öfundina nægja
b March 16 Lífið er ljóðEydís er skáldið á mínu heimili, hún vaknar með ljóð í munni á hverjum degi
b Framsetningin
Vei, hver samdi þessa frétt: Stjórnlagaþing mun kosta það sama og verið er að skera niður á Landsspítalanum b March 09 Hvernig gengur?Það sem mig dauðlangar að vita er : <sent á seðlabanka og viðskiptaráðuneyti>
kv. Birna --------------------------- Stefán Jóhann Stefánsson hringdi í mig úr Seðlabankanum og sagði eftirfarandi: (vonandi rétt eftir haft)
Kv. Birna March 06 Áfram KRum daginn var Sjáfstæðismaður í kaffi hjá mér
hann var mjög ósáttur við að líklega yrði Bjarni Ben formaður, hann vill Þorgerði
hann var mjög ósáttur við klíkuveldið innan flokksins hann var mjög ósáttur við frjálshyggjuna
hann var mjög ósáttur við hvernig var raðað í ráðherrastólana
hann var mjög ósáttur við framtaksleysi Geirs
hann var mjög ósáttur við Davíð í Seðlabankanum og að hann skyldi ekki vera rekinn
en ég held hann hafi ekki einusinni hugleitt að KJÓSA EKKI Sjálfstæðisflokkinn b March 05 Betri stjörnuspá
b March 03 StjörnuspáFebruary 22 Háir hælarFebruary 15 Bergmál1. Framboðs"hótun" Jóns Baldvins eins og bergmál af framboðs hótun Davíðs Oddssonar. Gamlir kallar sem þola ekki að sleppa stýrinu. Fariði heim að skrifa! 2. Viðbrögðin við hlýnun jarðar eru eins og bergmál af þeim ekki-viðbrögðum við öllum svörtu skýrslunum um stöðu bankanna á Íslandi. Eftir nokkur ár segir fólk "Ég hefði kannski átt að .." b LeiðarljósiðStjörnuspá Naut:
Það er auðveldara en þig grunar að sleppa sér lausum í kaupum á
yfirdrifnum munaðarvarningi. Efastu ekki um hæfileika þína. Gakktu því
ótrauður til verks.February 12 Just f** google it !Kæri skjár 1,
Hvernig væri að setja upp þátt sem gæti heitið "Just f** google it"
Fólk fær spurningar sem það þarf að svara og má nota allar leiðir sem þeim dettur í hug til að finna svarið. Google, hringja í afa, póst á nörda grúppur, spyrja vini á msn, ja.is, pósta facebook commenti, fyrirspurn í gagnagrunn, skrifa forrit sem finnur lausnina ..
Hver fótar sig best í upplýsingasamfélaginu ?
b February 06 Æsispennandi gjaldeyrisfærslaEins og mig (alla) grunaði, þá heldur Seðlabankinn uppi gengi krónunnar með því að sóa gjaldeyrinum í að kaupa krónur. [mynd úr Morgunkorni Glitnis]
Við verðum að losa okkur við þessi krónubréf, helst með því að semja um að borga þau út á ca 70% af verðmætinu eða hóta því að leyfa krónunni að falla til helv*** og borga bréfin út á Simbabwe gengi. Hahh! og senda svo einhvern til að bora í hnéskeljarnar á þeim (innskot frá vinnufélögunum)
b January 31 Gamalt og nýttÞarf ég enn og aftur að fara að mótmæla niðrí bæ?? Var þetta ekki komið. Er Framsókn enn og aftur með plott og makk og flokks- og einkahagsmuni í forgrunni. Var það ekki í gamla Íslandi ? Sigmundur Finnur Ásgrímsson. Ég sem á eftir að skúra og setja í vél .. b ReiknikjarkurJæja, Kolbeinn hafði kjark til að reikna út hvað ég á að borga á mánuði Hann miðar við að við greiðum skuldirnar á 20 árum með 5% vöxtum. Þá eru það ca 190 þús á mánuði fyrir mig og Eydísi . . + allt annað. Eydís er með ca. 20þús á mánuði í bakaríinu sínu. Ég tek restina. Þetta verður ..létt b January 25 NiðurtalningNu er Björgvin (1)farinn, og tok FME (2) blessunarlega með sér. Við bíðum eftir því að Davíð(3), Geir(4) og Árni(5) fari sömu leið. Þá á stjórnin hugsanlega séns og stjórnarkreppu aflýst í bili, og mótmælin sjatna. Ég horfði á Davíð yfirgefa árshátíð Seðlabankans í gær, löggan laumaði honum út bakdyramegin þegar flestir mótmælendur voru framanvið húsið. Hann er í rauninni í fangelsi, ekki skreppur hann útí Hagkaup. (hvar gæði heimsins er að finna) b January 22 Helgarfrí„Engin mótmæli föstudagskvöld eða laugardagskvöld. Látum ekki djammmenninguna blandast mótmælunum og byltinguna blandast fylleríi.
b |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|