Birna's profilefrú birnaPhotosBlogLists Tools Help

Birna Guðmundsdóttir

Location
Mostly harmless
by 
by 
by 
by 
by 

frú birna

Allir geta sungið nýja þjóðsönginn
June 13

bakarí og banki

bakarinn í Grimsbæ vill stofna öðruvísi banka. Ég vil heyra meira um það. Fer og kaupi mér brauð á morgun
March 27

Peysan !

 Ásdís Birgisdóttir textílhönnuður sér um handavinnuþátt Húsfreyjunnar
Hún hannaði peysu sem birtist í júníhefti Húsfreyjunnar í fyrra sem kallaðist "glæpsamlega snotur peysa" og er í dúr við Forbrydelsen peysuna, sem aftur er í dúr við peysur sem voru vinsælar á áttunda áratugnum.
Peysan er úr llama ull en auðvelt að prjóna úr t.d. plötulopa. Blaðið er hægt að nálgast á skrifstofu Kvenfélagasambandsins.

Forbrydelsen peysan er eftir færeyskt hönnunarteymi sem heitir Gudrun&Gudrun sem eru einmitt núna þátttakendur á hönnunardögum og sýningu á norrænni fatahönnun í Norræna húsinu.

Ég hleyp niður í Norræna hús !

b

March 26

Stór vinnustaður

 

GeoFriend á Facebook segir:

Pornwadee is one of my farthest friends at 9,945 km

En hún situr við hliðina á mér  :]

b

March 25

Laugavegurinn

 
Ásta ætlar að hlaupa Laugaveginn í sumar. Ég horfi bara á vídeóin og læt öfundina nægja
 
 
 
b
March 16

Lífið er ljóð

Eydís er skáldið á mínu heimili, hún vaknar með ljóð í munni á hverjum degi

Afhverju vaktir þú mig ekki!

Eru hreinir sokkar í þinni skúffu ?

Ég tek með mér banana, bless!

b

Framsetningin

 

Vei, hver samdi þessa frétt:  Stjórnlagaþing mun kosta það sama og verið er að skera niður á Landsspítalanum
af hverju sagði hann ekki   :  það kostar sama og afskriftir Moggans ?

b

March 09

Hvernig gengur?

    Það sem mig dauðlangar að vita er :  <sent á seðlabanka og viðskiptaráðuneyti>

    1. Hvað skuldum við mikið í krónubréfum og hvenær eru gjalddagar? (er þetta ekki til í súluriti hjá Seðlabanka eða hagstofu? )
    2. Hvernig er stefnt á að losna við krónubréfin og hvenær?
    3. Hvað er Seðlabankinn að eyða miklum gjaldeyri í að halda uppi genginu?
    4. Hversvegna erum við að "halda uppi" genginu??

    kv. Birna

    ---------------------------

    Stefán Jóhann Stefánsson hringdi í mig úr Seðlabankanum og sagði eftirfarandi: (vonandi rétt eftir haft)

    1. Upplýsingar um krónubréfin og gjalddaga þeirra er að finna á bond.is og í peningamálum Seðlabankans. Ég spurði hvort útistandandi væru um 200 ma, og hann sagði að það væri ekki fjarri lagi, en taldi þó að það væri nokkru lægra. < ég á eftir að fara inná bond.is og skoða >
    2. Hann kannaðist ekki við að nein opinber stefna væri um að losna við krónubréfin. Þó svo það hefði vissulega verið í umræðunni.
    3. Hann sagði Seðlabankann hafa eytt litlu í að halda uppi genginu
    4. Og tilgangurinn væri að halda verðbólgunni niðri.

Ég er sátt við greið svör, en sakna þess að fá á tilfinninguna að markvissar aðgerðir séu í gangi. Það er bara verið að beita klassískum aðferðum eftir bókinni, en þær hafa brugðist hingað til og einhver sagði að það væri búið að eyða 140 millj af AGS láninu. það eru soldið miklir peningar.
Í morgunkorni Íslandsbanka 6.feb kom fram að í um þriðjungi gjaldeyrisviðskipta væri Seðlabankinn að kaupa krónur (og sóa gjaldeyri!)

SÍ segir: - ég ætla að ýta þessu á sérfræðingana okkar og reyna að fá þessar upplýsingar í aðeins ítarlegra formi en ég nefndi við þig í símanum - til að setja á vefinn

    Kv. Birna

March 06

Áfram KR

 
um daginn var Sjáfstæðismaður í kaffi hjá mér
 
hann var mjög ósáttur við að líklega yrði Bjarni Ben formaður, hann vill Þorgerði
hann var mjög ósáttur við klíkuveldið innan flokksins
hann var mjög ósáttur við frjálshyggjuna
hann var mjög ósáttur við hvernig var raðað í ráðherrastólana
hann var mjög ósáttur við framtaksleysi Geirs
hann var mjög ósáttur við Davíð í Seðlabankanum og að hann skyldi ekki vera rekinn

en ég held hann hafi ekki einusinni hugleitt að   KJÓSA  EKKI   Sjálfstæðisflokkinn

b

March 05

Betri stjörnuspá

 

NautNaut: Þú leggur þig allan fram í starfi og er sama hvað þú tekur þér fyrir hendur það vekur almenna hrifningu yfirmanna þinna.

b

March 03

Stjörnuspá


NautNaut: Nú er rétti tíminn til þess að þú komir hugmyndum þínum á framfæri við starfsfélaga þína og yfirmenn. Stundum verður maður að leggja eitthvað á sig til að vináttan fái notið sín.

.. ætti kannski að skella mér í vinnuna

b
February 23

Jan Kritel Novak a Bridge band

Það gerist ekki skárra .. 

 

   b
February 22

Háir hælar



Ég hélt ég væri geðveikt töff að stofna on-line hlaupahóp sem heitir "Háir hælar"

 .. en svo sá ég annan hóp sem heitir "Bíddu aðeins .. "  :]

b
February 15

Bergmál


1
.   Framboðs"hótun" Jóns Baldvins eins og bergmál af framboðs hótun Davíðs Oddssonar.  Gamlir kallar sem þola ekki að sleppa stýrinu. Fariði heim að skrifa!

2.   Viðbrögðin við hlýnun jarðar eru eins og bergmál af þeim ekki-viðbrögðum við öllum svörtu skýrslunum um stöðu bankanna á Íslandi.  Eftir nokkur ár segir fólk "Ég hefði kannski átt að .."

b

Leiðarljósið

Stjörnuspá

NautNaut: Það er auðveldara en þig grunar að sleppa sér lausum í kaupum á yfirdrifnum munaðarvarningi. Efastu ekki um hæfileika þína. Gakktu því ótrauður til verks.
February 12

Just f** google it !

Kæri skjár 1,

 

Hvernig væri að setja upp þátt sem gæti heitið "Just f** google it"

 

Fólk fær spurningar sem það þarf að svara og má nota allar leiðir sem þeim dettur í hug til að finna svarið.

Google, hringja í afa, póst á nörda grúppur, spyrja vini á msn, ja.is, pósta facebook commenti, fyrirspurn í gagnagrunn, skrifa forrit sem finnur lausnina ..

 

Hver fótar sig best í upplýsingasamfélaginu ?

 

 

 

b

February 09

Bossanova

 
Ég fór til tannlæknis áðan og keypti mér skó. þeir eru æði
 
 

 
b
February 08

snjörklípur


Bréf Davíðs er eitt sjörstykki.
Þetta er nú meiri farsinn

b
February 06

Æsispennandi gjaldeyrisfærsla

 
Eins og mig (alla) grunaði, þá heldur Seðlabankinn uppi gengi krónunnar með því að sóa gjaldeyrinum í að kaupa krónur. [mynd úr Morgunkorni Glitnis] 

Við verðum að losa okkur við þessi krónubréf, helst með því að semja um að borga þau út á ca 70% af verðmætinu eða hóta því að leyfa krónunni að falla til helv*** og borga bréfin út á Simbabwe gengi. Hahh! og senda svo einhvern til að bora í hnéskeljarnar á þeim (innskot frá vinnufélögunum)
 
b
February 02

Uppgangur


Gríðarleg "umsvif" hjá vinnumálastofnun ..

b

January 31

Gamalt og nýtt


Þarf ég enn og aftur að fara að mótmæla niðrí bæ?? Var þetta ekki komið. Er Framsókn enn og aftur með plott og makk og flokks- og einkahagsmuni í forgrunni. Var það ekki í gamla Íslandi  ?  Sigmundur Finnur Ásgrímsson.
Ég sem á eftir að skúra og setja í vél ..

b


Reiknikjarkur


Jæja, Kolbeinn hafði kjark til að reikna út hvað ég á að borga á mánuði
Hann miðar við að við greiðum skuldirnar á 20 árum með 5% vöxtum.
Þá eru það ca 190 þús á mánuði fyrir mig og Eydísi . . + allt annað.

Eydís er með ca. 20þús á mánuði í bakaríinu sínu. Ég tek restina.

Þetta verður ..létt

b



January 25

Niðurtalning

Nu er Björgvin (1)farinn, og tok FME (2) blessunarlega með sér. Við bíðum eftir því að Davíð(3), Geir(4) og Árni(5) fari sömu leið. Þá á stjórnin hugsanlega séns og stjórnarkreppu aflýst í bili, og mótmælin sjatna.
Ég horfði á Davíð yfirgefa árshátíð Seðlabankans í gær, löggan laumaði honum út bakdyramegin þegar flestir mótmælendur voru framanvið húsið. Hann er í rauninni í fangelsi, ekki skreppur hann útí Hagkaup. (hvar gæði heimsins er að finna)

b
January 23

C.R.A.Z.Y.


Nú er nóg komið af þessari viku. Ég er farin í bíó


b

Birnir vita hvað þarf

Bare Necessities
    


January 22

Helgarfrí

 
„Engin mótmæli föstudagskvöld eða laugardagskvöld. Látum ekki djammmenninguna blandast mótmælunum og byltinguna blandast fylleríi.
 
b
 
Jóla  
Photo 1 of 6
More albums (59)